Marrakech - Heimsferðir
Marrakech
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur 
Flugvöllurinn í Marrakech heitir Marrakech Menara Airport (RAK). Flugtíminn til Marrakech frá Keflavík er um 5 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta.

Farangur og farangursheimild
Árið 2024 er flogið til Marrakech með flugfélaginu PLAY. Leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 20 kg taska á hvern farþega auk lítillar tösku sem kemst undir sætið fyrir framan þig.  

Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi verður farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn 
Í Marokkó er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Marokkó og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í marokkóskt númer skal setja inn 00212- á undan númerinu. 

ATH! það getur verið mjög dýrt að hringja úr íslenskum farsímum í Marokkó og einnig ef farið er á Internetið þar sem notað er íslenskt gagnamagn. Best er að hafa slökkt á farsímagögnum (e. mobile data) og kynna sér verðskrá símafyrirtækisins.

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.

ATH. Haust 2024 er enginn fararstjóri á vegum Heimsferða. 

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið frá flugvelli að hóteli. Tekur sú ferð að jafnaði um 30 mínútur en fer eftir umferð og á hversu mörg hótel rútan fer. 

Á leiðinni fara fararstjórar yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga, sem og dagskrá skoðunarferða. Ekki er hægt að bóka rútu nema á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. ATH! Að öllu jafna eru ekki sætisbelti í rútum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

ATH. Haust 2024 er engin rútuferð til og frá flugvelli með Heimsferðum.

Læknisþjónusta
Ef þarf á læknisaðstoð að halda er hægt að fá aðstoð enskumælandi læknis með milligöngu hótelmóttöku eða fararstjóra Heimsferða. Þar sem Marokkó fellur ekki undir EES ríki skal huga vel að ferða- og sjúkratryggingum áður en farið er af stað. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Gjaldmiðill
Gjaldmiðillinn í Marokkó er Dirham. Dirham fæst ekki á Íslandi en bæði er hægt að taka með evrur og fá þeim skipt, en einnig eru hraðbankar mjög víða og gjarnan inni á hótelunum. Einn Dirham eru tæplega 14 ISK samkvæmt skráningu í nóvember 2023.

Brottför 
Þeir sem eiga pantaða rútuferð frá hóteli á flugvöll fá brottfarartíma staðfestan hjá fararstjóra. Einnig má sjá brottfarartíma frá hóteli á dagskrárblöðum sem farþegar fá sent í tölvupósti. Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum um hádegi á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Mr. Driss Benomar – Honorary Consul
Heimilisfang: 
41 rue Kharzouza
20200 Casablanca
Netfang: consulatislandemaroc@gmail.com
Sími: (522) 95 09 55 / 68
Landsnúmer: 212

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

Kenzi Rose Garden

Marrakech

Palm Plaza Hotel and Spa

Marrakech

Labranda Rose

Marrakech

Es Saadi

Marrakech

Riu Tikida Palmeraie

Marrakech

El Andalous Lounge & Spa Hotel

Marrakech

Albakech Boutique Hotel & Spa

Marrakech

Hotel Imperial Plaza

Marrakech

Red Hotel

Marrakech

Opera Plaza

Marrakech

Riu Tikida Garden

Marrakech

Hotel Valeria Madina Club

Marrakech

Hotel Valeria Dar Atlas

Marrakech

Hotel Bluesea le Printemps

Marrakech

Ari Boutique Hotel

Marrakech

Stökktu til Marrakech

Marrakech

Kennedy Hospitality Resort

Marrakech

Oudaya Hotel & Spa

Marrakech

Assounfou Aparthotel

Marrakech

Labranda Targa Club Aqua Park

Marrakech

Adam Park Marrakech Hotel & Spa

Marrakech

Iberostar Waves Club Palmearie

Marrakech

Kenzi Club Menara Palace & Resort

Marrakech