Wazo Hotel er 4 stjörnu hótel staðsett í Gueliz / Route de Casablanca í Marrakech, í nokkurra mínútna akstursfjarlægð frá miðborginni og hinu fræga markaðstorgi Jemaa el Fna og Majorella garðinum. Góð tenging er við helstu ferðamannastaði í Marrakech, verslanir, kaffihús og veitingastaði eru í göngufæri eða stuttri keyrslu. Hótelið er staðsett í rólegu umhverfi en samt nálægt lífi og menningu borgarinnar.
Á hótelinu er góð sameiginleg aðstaða, útisundlaug, heilsurækt og Spa ásamt líkamsræktaraðstöðu. Nokkrir matsölustaðir eru á hótelinu þar sem í boði er morgun- hádegis- og kvöldverður.
Herbergin eru ágætlega rúmgóð og vel búin helstu þægindum. Öll með loftkælingu, sjónvarpi og vel búnu baðherbergi.
Góður kostur fyrir þá sem vilja vel staðsett hótel með góðri þjónustu, sundlaug, heilsurækt og góðri sameiginlegri aðstöðu.