Zalagh Kasbah Hotel & Spa er fjögurra stjörnu hótel og spa-miðstöð í Marrakech, staðsett í Agdal-hverfinu í suðurhluta borgarinnar. Á hótelinu er góð sameiginleg aðstaða, fallegur garður, heilsurækt, úti - og innisundlaug, veitingastaðir og barir.
Hótelið liggur við Agdal garðinn í u.þ.b. 10-15 mínútna akstursfjarlægð frá helstu ferðamannastöðum borgarinnar, þar á meðal markðinum og sögulegum kennileitum.
Herbergin eru rúmgóð og öll með loftkælingu, sónvarpi og minibar. Herbergin eru með svölum eða verönd og snúa annaðhvort út í garð eða með útsýni að Atlas fjöllunum. Herbergin er skemmtileg blanda af klássískum marokkóskum stíl við einfaldan nútímalegan stíl.
Gott hótel fyrir ferðamenn sem vilja sambland af afslöppun og aðgengi að borgarlífi.