Flug og flugvöllur
Flugvöllurinn á Costa del Sol heitir Aeropuerto de Málaga-Costa del Sol (AGP). Flugtíminn til Málaga frá Keflavík er um 4 ½ klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta.
Farangur og farangursheimild
Flogið er til Málaga með flugfélaginu PLAY, leyfileg hámarksþyngd á innrituðum farangri er 20 kg taska á hvern farþega auk 12 kg handfarangurs (hámarks stærð á tösku í handfarangri 56x45x25 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi verður farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!
Sími og rafmagn
Á Spáni er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Spáni og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í spænskt númer skal setja inn 0034- á undan númerinu.
Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.
Ekki er fararstjóri á vegum Heimsferða á Costa del Sol
ATH. Ekki er boðið upp á akstur á Costa del Sol svæðinu
Barnabílstólar
Algengt er að ferðamenn leigi bílstóla fyrir börn þegar ferðast er til annarra landa. Oft er hægt að panta slíka stóla í gegnum bílaleigur en hér eru einnig nokkrar slóðir á slíkar leigur:
Baby Equipment Rental
The Stork Exchange
Rafskutlur
Algengt er að ferðamenn leigi sér rafskutlur. Þetta á oft við í tilfellum þar sem farþegar eiga erfitt með gang til dæmis. Hér má finna leigur sem bjóða upp á rafskutlur.
Malaga Mobility Rental
Mobility Costa
Hola Mobility
Þjófnaður
Við viljum vara fólk við að alls staðar gætu leynst vasaþjófar og verslanir sem eru óhefðbundnar. Mikilvægt er að láta kort aldrei frá sér og varist að nokkur sjái PIN númer slegið inn. Dæmi eru um að myndavélar hangi fyrir ofan posa í óhefðbundnum verslunum. Einnig eru dæmi um að starfsmenn biðji kúnna um kort og fari með þau afsíðis.
Læknisþjónusta
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu hótelsins. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross.
Brottför
Farþegar þurfa að skrá sig út af herbergjum fyrir kl. 12:00 á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða á Íslandi í síma 00354-595-1000.
Íslenskur ræðismaður
Mr. Per Dover Petersen
Heimilisfang:
Edif. Ronda I, 3B
Marítimo 91
ES-29640 Fuengirola
Málaga
Sími: (0034) 952 661 200
Netfang: info@isconsul.com