Porto - Heimsferðir
Porto

Porto er óviðjafnanleg borg á fleiri hátt en einn!

Í mörg ár hefur Heimsferðir boðið upp á borgarferð í beinu flugi til Porto í Portúgal. Borgin var árið 2022 kjörin besti borgaráfangastaður heimi. Porto er önnur stærsta borg Portúgal og dregur landið nafn sitt af henni. Hér mætast mikil saga, falleg byggingarlist, blómleg menning, ljúffengur matur og mögnuð upplifun. Borgin stendur við Douroána, hún er mjög hæðótt og margar byggingarnar við Douroána eru byggðar beint inn í klettana. 

Porto hefur sjarma allra þeirra bæja sem liggja við Douroána en unnt er að rölta með fram ánni á Ribeira árbakkanum, eða upplifa borgina með því að sigla um ána og upplifa þannig byggingarlistina, ótrúlegt landslagið og stórkostlegar brýr sem liggja yfir ána. Gamli bærinn í Porto er á heimsminjaskrá UNESCO. Þar eru göturnar þröngar og brattar, byggingarnar litríkar og fallegar og vekja upp þá tilfinningu að maður hafi ferðast aftur í tímann. 

Það er einstaklega skemmtilegt upplifa sögu borgarinnar á göngu og þú mátt ekki missa af gersemum eins og Bolsa höllinni. En Porto er ekki síður nútímaleg borg en söguleg. Nýrri hverfin eru full af einstöku andrúmslofti, lífi og mikilli grósku. Aðaljárnbrautarstöðin Sao Bento er skreytt með stórkostlegum myndum gerðum úr bláum og hvítum flísum sem kallast azeulejos. Við Ribeira árbakkann standa veitingahús í röðum og við Ribeira-torgið er mikið líf og fjör en þar eru fjöldi bara og veitingastaða. Þá eru hér merkilegar byggingar á borð við Dómkirkjuna en þaðan er frábært útsýni yfir borgina. Frá Dom Luis brúnni er einnig stórkostlegt útsýni yfir Porto og yfir til systurborgarinnar Vila Nova de Gaia handan árinnar, þar standa Púrtvínshúsin í röðum.

 

Fararstjórar apríl 2026: Sigrún Knútsdóttir og Ingibjörg Gréta Gísladóttir 

Hagnýtar upplýsingar fyrir Porto

Sigrún Knútsdóttir er með diploma í fararstjórn erlendis og var Portúgal lokaverkefni hennar í því námi. Sigrún hefur síðan unnið við fararstjórn í Porto fyrir Heimsferðir í 10 ár og þekkir Porto og sögu Portúgal mjög vel en Portúgal á sérstakan stað í hjarta hennar.  
Sigrún er sjúkraþjálfari að mennt, starfaði á Borgarspítalanum/Landspítala í 46 ár og var yfirsjúkraþjálfari Grensásdeildar í yfir 30 ár. Hún sinnti einnig félagsstörfum fyrir sjúkraþjálfara í mörg ár, bæði sem formaður félagsins og varaformaður Evrópudeildar Heimssambands sjúkraþjálfara. 


 

 

 

 

Kynnisferðir Heimsferða - Porto


Ferð: Porto – Rútuferð um borgina 
Dagsetning:
Fimmtudaginn 23.apríl  
Tími: Um 2-3 klst.
 Rútuferð um miðborgina, þar sem farið er fram hjá helstu kennileitum borgarinnar, svo sem Clérigos-turninum, aðalbreiðgötunni, S. Bento lestarstöðinni og gamla hverfinu í Ribeira.

Ferðin endar á heimsókn í púrtvínskjallara með vínsmökkun. 

Verð kr. 5.900 á mann. 
Innifalið í verði: Íslensk leiðsögn, rútuferð og heimsókn í púrtvínskjallara. 


Ferð: Kynniferð til Braga - NÝTT
Dagsetning:
Föstudaginn 24.apríl  
Tími: Um 4 klst.

Við ökum norður til Braga en aksturinn tekur um 45 mínútur hvora leið. Við heimsækjum þennan fallega bæ sem inniheldur ríka sögu frá 6. öld. Við komum inn í bæinn í gegnum Porta Nova bogaganginn, en þar er sagt að lyklarnir að borginni séu geymdir, lyklar að þúsund ára gamalli borg þar sem minnisvarðar eru áminning um hið stórveldi sem biskupar höfðu áður fyrr. Hér verður farið í göngutúr í gegnum miðbæinn og skoðað helstu minnisvarða og dómkirkjuna..

Verð kr. 6.500 á mann. 
Innifalið í verði: Íslensk leiðsögn og rútuferð. 


Ferð: Kynnisferð um miðaldarbæinn Guimarães - transfer á flugvöll
Dagsetning:
Sunnudaginn 26.apríl  - farið af stað 12:30 - takið eftir að brottför er klukkan 21:30 frá flugvellinum í Porto. 
Tími: Um 6 klst.

Við ökum um Minho héraðið frá Porto til miðaldarbæjarins Guimarães, (circa 45 mín keyrsla) sem er álitinn fæðingarstaður Portúgalska þjóðernisins. Fyrsti portúgalski konungurinn á að hafa fæðst þar og þar lýsti Portúgal yfir sjálfstæði sínu. Á leiðinni til bæjarins fræðumst við um sögu bæjarins og við komuna skoðum við að utan kastalann og S. Michael kapelluna frá 11. öld. Við göngum fram hjá höll Bragança hertoganna og um þröngar gamlar götur niður í neðri hluta bæjarins. Við sjáum Nossa Senhora da Oliveira kirkjuna og Padrão do Salado minnismerkið, falleg torg og margar vel varðveittar byggingar allt frá 15. öld. Fjáls tími er gefinn til að líta inn í sérverslanir í bænum, bragða á sætabrauði eða fá sér bita (valkostur) áður en við ökum út á flugvöll.

Verð kr. 6.500 á mann. 
Innifalið í verði: Íslensk leiðsögn og rútuferð. Akstur út á flugvöll er innifalinn í verði.


Ath. Lágmarksþátttaka í ferð með íslenskumælandi fararstjóra er 20 manns, en bóka þarf kynnisferðir á Íslandi í síðasta lagi 3 dögum fyrir brottför. Hafa þarf í huga að uppselt getur verið í ferðina fyrir þann tíma.


Ath. Hægt er að bóka kynnisferðir þegar ferð er bókuð á netinu eða í gegnum síma 595-1000

Ath. Verð miðast við farþega í pakkaferðum á vegum Heimsferða

Vinsamlegast athugið að verð og tímasetningar eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, Heimsferðir áskilja sér rétt að breyta slíku án fyrirvara. Athugið að nákvæmar tímasetningar liggja endanlega fyrir rétt fyrir brottför og er öllum farþegum tilkynnt um þær.   


 

Áhugavert að skoða í Porto!

Ýmislegt er hægt að gera í Porto og hér að neðan má finna ýmsa afþreyingu.

Livraria Lello

Hér má finna glæsilega bókabúð þar sem J.K. Rowling fékk innblástur af sögunum af Harry Potter. Hægt er að kaupa aðgangsmiða hér.

The Gin House

Ertu gin megin í lífinu eða hefurðu aldrei smakkað gin? Hér er að finna glæsilegan Gin bar með yfir 100 tegundir af gini. Þeir sérhæfa sig í gin kokteilum og aðstoða nýgræðinga að finna taktinn með réttu gini. Hægt er að skoða barinn hér.

Sea Life

Hver elska ekki að fara í Sea Life? Hér er hægt að kaupa miða. 

 

*Vert er að taka fram að þessar ferðir eru ekki á vegum Heimsferða, heldur aðeins hugmyndir um áhugaverða staði. Heimsferðir bera ekki ábyrgð á miðakaupum. 

 

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

Timbre Heroismo

Porto

Vila Galé Porto Centro

Porto

Carris Porto Ribeira

Porto

PortoBay Hotel Teatro

Porto

Holiday Inn Porto Gaia

Porto

Hotel Porto Palacio Congress & SPA

Porto

Fontinha Hotel

Porto

Dom Henrique

Porto

Stökktu til Porto 4*

Porto

Hotel Eurostars Aliados

Porto

NH Collection Porto Batalha

Porto

Hotel NH Porto Jardim

Porto

Renaissance Porto Lapa Hotel

Porto

B&B HOTEL Porto Centro Massarelos

Porto

Yotel Porto Downtown

Porto

Hotel Tryp Porto Centro

Porto