Kairó - Heimsferðir
Kairó
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur 
Flugvöllurinn í Kairó heitir Cairo International  (CAI) og er stærsti flugvöllurinn í Egyptalandi. Flugtíminn til Kairó frá Keflavík er rúmlega 7 klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta.

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Kairó með flugfélaginu Neos Air. Hver farþegi má að hámarki hafa 23 kg tösku, auk 8 kg handfarangurstösku (hámarks stærð á tösku í handfarangri 54x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi þarf farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn 
Í Egyptalandi  er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Egyptalandi og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í egypskt númer skal setja inn 0020- á undan númerinu. 

ATH! Það getur verið mjög dýrt að hringja úr íslenskum farsímum í Egyptalandi og einnig ef farið er á Internetið þar sem notað er íslenskt gagnamagn. Best er að hafa slökkt á gagnamagninu og kynna sér verðskrá símafyrirtækisins.

Símafyrirtækin eru með upplýsingar á sínum heimasíðum um verð símtala frá útlöndum. Mörg þeirra bjóða upp á ferðapakka fyrir símtöl utan EES. 

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera fararstjóra Heimsferða og starfsfólki hótelsins viðvart því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Fararstjórar Heimsferða taka á móti hópnum á flugvellinum og þeim sem eiga pantaða rútuferð er ekið frá flugvelli að hóteli. 

Á leiðinni fara fararstjórar yfir helstu atriði sem hafa þarf í huga. Ekki er hægt að bóka rútu nema á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst. Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. ATH! Að öllu jafna eru ekki sætisbelti í rútum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

Þjófnaður
Við viljum vara fólk við að alls staðar gætu leynst vasaþjófar og verslanir sem eru óhefðbundnar. Mikilvægt er að láta kort aldrei frá sér og varist að nokkur sjái PIN númer slegið inn. Dæmi eru um að myndavélar hangi fyrir ofan posa í óhefðbundnum verslunum. Einnig eru dæmi um að starfsmenn biðji kúnna um kort og fari með þau afsíðis. 

Læknisþjónusta
Ef þarf á læknisaðstoð að halda er hægt að fá aðstoð læknis upp á hótelherbergi. Best er að hafa samband við fararstjóra og fá aðstoð. Þar sem Egyptaland fellur ekki undir EES ríki skal huga vel að ferða- og sjúkratryggingum áður en farið er af stað. 

Gjaldmiðill
Best er að nota USD eða EUR í Egyptalandi. Gjaldmiðillinn í Egyptalandi er egypskt pund (EGP). Egypskt pund fæst ekki á Íslandi en bæði er hægt að taka með evrur og dollara og nota í Egyptalandi. Hægt er að taka út peninga úr hraðbönkum og gjarnan inni á hótelunum en þar eru þeir einungis með egypskt pund. Eitt egypskt pund er tæplega 5 ISK samkvæmt skráningu í febrúar 2023.

Vegabréfsáritun
Íslenskir ferðamenn þurfa vegabréfsáritun til Egyptalands.  Áritunin er auðfengin og er hún afgreidd á flugvellinum við komu.  Kostnaður er ISK 6.000 pr mann og munu Heimsferðir innheimta gjaldið.

Brottför 
Þeir sem eiga pantaða rútuferð frá hóteli á flugvöll fá brottfarartíma staðfestan hjá fararstjóra. Að öllu jöfnu er skráning út af hótelum um hádegisbil á brottfarardegi. Hótelmóttakan sér um að geyma farangur fram að brottför ef þörf er á. Þeir sem eru eingöngu bókaðir í flugsæti bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða í síma 00354-595-1000.