Gardavatnið - Heimsferðir
Gardavatnið
Hagnýtar upplýsingar

Flug og flugvöllur
Flogið er til Verona og heitir flugvöllurinn Valerio Calullo Airport (VRN). Flugtíminn til Verona frá Keflavík er um 4 klst. Mæta þarf til innritunar á flugvöll eigi síðar en 2 klst fyrir áætlaða brottför. Í einstaka tilfellum er flug stuttu eftir miðnætti og því er mæting á flugvöll í raun „kvöldinu áður“ en flugdagsetning segir til um. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá flugtíma sína staðfesta. 

Farangur og farangursheimild
Flogið er til Verona með flugfélaginu Neos Air. Hver farþegi má að hámarki hafa 20 kg tösku, auk 8 kg handfarangstösku (hámarks stærð á tösku í handfarangri 54x40x20 cm). Ef farangur skilar sér ekki eða skemmist í flugi þarf farþegi að gera skýrslu um málið hjá þjónustuaðila á flugvelli áður en komusalur er yfirgefinn. Ef ekki er gerð skýrsla fæst tjónið einfaldlega ekki bætt. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í flugvélinni!

Sími og rafmagn 
Á Ítalíu er rafmagnið 220 volt eins og hér á Íslandi. Þegar hringt er úr íslenskum síma frá Ítalíu og í íslenskt númer skal setja inn 00354- á undan símanúmerinu. Ef hringt er úr íslenskum síma í ítalskt númer skal setja inn 0039- á undan númerinu. 

Þjónusta á áfangastað
Ef farþegi telur að eitthvað sé ábótavant varðandi þjónustu hótels eða óánægja er með íbúð eða herbergi skal gera starfsfólki hótelsins viðvart, því ekkert er hægt að gera eftir að heim er komið. Hægt að hringja á skrifstofu Heimsferða á skrifstofutíma.  

Ekki er fararstjóri á vegum Heimsferða við Gardavatnið. 

Ferðamannaskattur og trygging
Á gististöðum hér þarf að greiða ferðamannaskatt. Skattinn þurfa ferðamenn að greiða sjálfir á viðkomandi hóteli. Upphæðin ræðst af stjörnugjöf hótelanna hverju sinni. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Einstaka hótel fer fram á tryggingargjald sem er endurgreitt við brottför ef ekkert tjón hefur orðið á herbergi/íbúð meðan á dvöl stóð. Þá getur hótelið farið fram á kreditkortanúmer sem tryggingu meðan á dvöl stendur. 

Upplýsingar fyrir farþega sem eiga bókaðan akstur á vegum Heimsferða
Heimsferðir geta útvegað akstur til og frá Verona flugvelli. Akstur þarf að bóka á skrifstofu Heimsferða áður en ferðin hefst og þarf að fullgreiða akstur við bókun. Misjafnt er hversu langur aksturinn er, en það fer eftir umferð og hvar er stoppað hverju sinni. Fjarlægð frá flugvellinum í beinum akstri er:
- Lazise – ca. 25 mín akstur (23 km)
- Bardolino – ca. 35 mín akstur (29 km)
- Garda – 40 mín akstur (36 km)
- Nago-Torbole – 60 mín akstur (77 km)
- Riva del Garda – 70 mín akstur (84 km)
Gætið þess að koma sjálf farangri ykkar í rútuna til að tryggja að hann verði ekki eftir á flugvellinum. ATH! Að öllu jafna eru ekki sætisbelti í rútum. Passið vel upp á að gleyma engu um borð í rútunni.

Barnabílstólar
Algengt er að ferðamenn leigi bílstóla fyrir börn þegar ferðast er til annarra landa. Oft er hægt að panta slíka stóla í gegnum bílaleigur, en hér eru einnig slóð á slíka leigu:
- Garda Service 4 U 

Rafskutlur 
Algengt er að ferðamenn leigi sér rafskutlur. Þetta á oft við í tilfellum þar sem farþegar eiga erfitt með gang til dæmis. Hér má finna leigu sem býður upp á rafskutlur:
- Garda Service 4 U 

Þjófnaður
Við viljum vara fólk við að alls staðar gætu leynst vasaþjófar og verslanir sem eru óhefðbundnar. Mikilvægt er að láta kort aldrei frá sér og varist að nokkur sjái PIN númer slegið inn. Dæmi eru um að myndavélar hangi fyrir ofan posa í óhefðbundnum verslunum. Einnig eru dæmi um að starfsmenn biðji kúnna um kort og fari með þau afsíðis. 

Læknisþjónusta
Góð læknisþjónusta er á staðnum og er hægt að fá enskumælandi lækni heim á hótel með milligöngu hótels. Íslendingar eru tryggðir innan EES ef um ríkisrekna heilsugæslu og sjúkrastofnanir er að ræða en ekki á einkareknu stofunum. Við minnum farþega á að hafa Evrópska sjúkratryggingakortið alltaf með í för þegar ferðast er og huga vel að tryggingunum sínum. Opnunartími apóteka er mismunandi en viðurkennd apótek eru merkt með grænum kross. 

Brottför
Að öllu jöfnu er skráning út af hótelum um kl. 10 á brottfarardegi, almennt er hægt að geyma farangur í hótelmóttöku eftir þann tíma sé þess þörf. Farþegar bera sjálfir ábyrgð á því að fá brottfarartíma staðfestan á flugvelli eða skrifstofu Heimsferða í síma 00354-595-1000.

Íslenskur ræðismaður
Mrs. Olga Clausen 
Heimilisfang:
Via Luigi Vitali, 2
IT-20122 Milano 
Sími: 02 783 640
Farsími: 33 55 21 2550 
Netfang: olgaclausen@iol.it