- Allt innifalið fæst
- Barnalaug
- Fjölskylduvænt
- Hálft fæði innifalið
- Loftkæling
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Wi-Fi
Góður, vel staðsettur og rólegur valkostur með fjölbreyttri þjónustu, sér í lagi fyrir fjölskyldufólk.
Gott hótel sem stendur nálægt ströndinni, eða í einungis 200 metra fjarlægð. Þá er hótelið rétt við miðbæ Platanias og systurhótel Porto Platanias Beach hótelsins þar er móttakan fyrir Porto Platanias Village.
Hótelið er góður kostur fyrir fjölskyldur en garðurinn og svæðið við sundlaugina er tilvalið að njóta sólardaganna þar. Góður veitingastaður fyrir gesti hótelsins.
Porto Platanias Village býður góðar íbúðir, misjafnlega staðsettar á hótelinu og ráða Heimsferðir ekki staðsetningu sinna farþega. Íbúðir eru með litlu eldhúsi með ísskáp og öðrum eldhúsáhöldum, þá er sími og sjónvarp í íbúðum og allar með svölum eða verönd.
Hér er frítt þráðlaust internetaðgengi (Wi-Fi) á almenningssvæðum, hægt að spila borðtennis og þvottaaðstaða stendur til boða gegn gjaldi. Gestir á Porto Platanias Village geta nýtt sér líkamsræktaraðstöðuna á Porto Platanias Beach hótelinu.
Þjónusta þar sem allt er innifalið felur í sér að morgun-, hádegis- og kvöldverður er innifalinn í verði meðan á dvöl stendur og einnig drykkir, óáfengir og áfengir (innlendir), og gjarnan létt snarl á milli mála. Ef hótelið er með a la carte veitingastað er misjafnt hve oft er í boði að fara meðan á dvöl stendur, þá er einnig misjafnt hvort kvöldverður þar sé gegn aukagjaldi eða ekki. Þjónusta þar sem allt er innifalið er ávallt með einhverjum takmörkunum, upplýsingar um það fást við komu.
Vert er að taka fram að á hótelum sem bjóða þjónustu þar sem allt er innifalið er ekki sjálfgefið að bjóða megi gestum inn í garðinn eða á hótelið. Misjafnlega strangt er tekið á þessu á milli hótela en góð regla er að spyrjast fyrir í móttöku áður en von er á gestum sem dvelja á öðrum gististöðum.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Þá má nefna að þó að hótel bjóði aðgengi að interneti er vert að taka fram að internetsamband getur verið hægt og höktandi á ákveðnum álagstímum.
Á gististöðum hér þarf að greiða ferðamannaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á gistieiningu en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Góður valkostur með góða staðsetningu í nálægð við líf og fjör Platanias.
Um gistinguna
Bar | Já |
Barnaklúbbur | Já |
Barnalaug | Já |
Barnaleiksvæði | Já |
Barnarúm | Já, gegn pöntun |
Bílastæði | Já, gegn gjaldi |
Byggingarár | 2000 |
Eldhúsaðstaða | Já |
Endurnýjað | 2015 |
Fjarlægð frá flugvelli | 20 km |
Fjarlægð frá miðbæ | 12 km Chania |
Fjarlægð frá næsta miðbæjarkjarna | 200 m Platanias |
Fjarlægð frá strönd | 300 m |
Fjöldi herbergja/íbúða | 199 |
Fjöldi hæða | 3 |
Handklæðaskipti, oft í viku | 2 |
Hárblásari/Hárþurrka | Já |
Ísskápur | Já |
Ketill fyrir te/kaffi | Já |
Loftkæling | Já |
Lyfta | Já |
Móttaka | Já |
Næsti súpermarkaður | 0 m |
Sími | Já |
Sjónvarp í herb/íbúð | Já |
Skemmtidagskrá | Já |
Skipt á rúmum, oft í viku | 2 |
Strandhandklæði | Já, gegn gjaldi |
Sundlaug | Já |
Sundlaugarbar | Já |
Veitingastaður | Já |
WiFi | Frítt |
Þrif, oft í viku | 7 |
Þvottaaðstaða | Já, gegn gjaldi |
Öryggishólf | Já, gegn gjaldi |
Opinber stjörnugjöf
4 stjörnur
Vefsíða
www.portoplataniasvillage.gr