- Barnalaug
- Fjölskylduvænt
- Loftkæling
- Strönd
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Wi-Fi
Hotel Kiani Beach Resort er gott 4 stjörnu fjölskylduhótel með afar fjölbreyttri og persónulegri þjónustu ─ hér er eitthvað fyrir alla. Frábær kostur fyrir fjölskyldur og "allt innifalið".
Gott hótel með afar fjölbreyttri þjónustu og afþreyingu fyrir fullorðna jafnt sem börn. Hótelið er staðsett út í sveit og er rétt fyrir utan lítið þorp Kalyves (15 mínútna ganga) og til Chania eru um 15 km. Hótelið stendur eitt og sér við sveitaveg og ströndin og sveitin er nánast umhverfið, en hægt er að ganga meðfram ströndinni og inn í litla þorpið.
Hótelið og þjónustan í boði er hannað með þeim hætti að maður þurfi í raun ekki að fara út af hótelinu til þess að sækja sér þjónustu nema maður vilji það sérstaklega.
Hér er mikil dagskrá í gangi fyrir fjölskyldufólk, barnaklúbbar og skemmtidagskrá á daginn og kvöldin.
Garðurinn er stór og hér er góð aðstaða með sundlaug, barnalaug, sólbekkjum og sólhlífum. Þá er hér líkamsræktaraðstaða og hægt að spila billiard.
Á hótelinu eru 115 herbergi, að lágmarki um 31m2 að stærð, ýmist með útsýni til fjalla eða hafs og hægt að sérpanta svítur og fjölskylduherbergi (sem geta verið á 2 hæðum). Unnt er að tengjast þráðlausu interneti (Wi-Fi) í almennum rýmum hótelsins.
Á flestum gististöðum er hægt að tengjast þráðlausu interneti (Wi-Fi) á sameiginlegum svæðum hótelsins og í herbergjum gegn gjaldi. Þá má nefna að þó að hótel bjóði aðgengi að interneti er vert að taka fram að internetsamband getur verið hægt og höktandi á ákveðnum álagstímum.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á sumum gisti- og áfangastöðum þarf að greiða ferðamannaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Um gistinguna
Bar | Já |
Barnaklúbbur | Já |
Barnalaug | Já |
Barnaleiksvæði | Já |
Barnarúm | Já |
Billiardborð | Já, gegn gjaldi |
Borðtennis | Já |
Byggingarár | 2007 |
Fjarlægð frá miðbæ | 20 km Chania |
Fjarlægð frá næsta miðbæjarkjarna | 3 km Kalives |
Fjarlægð frá strönd | 0 m |
Fjöldi herbergja/íbúða | 115 |
Fjöldi hæða | 4 |
Fjölskylduvænt | Já |
Handklæðaskipti, oft í viku | 2 |
Hárblásari/Hárþurrka | Já |
Herbergisþjónusta | Já |
Ísskápur | Já |
Leikjaherbergi | Já |
Líkamsræktaraðstaða | Já |
Loftkæling | Já |
Lyfta | Já |
Móttaka | Já, allan sólarhringinn |
Nudd | Já, gegn gjaldi |
Næsti súpermarkaður | 0 m |
Sími | Já |
Sjónvarp í herb/íbúð | Já |
Skemmtidagskrá | Já |
Skipt á rúmum, oft í viku | 2 |
Snarlbar | Já |
Strandhandklæði | Já, gegn gjaldi |
Sundlaug | Já |
Sundlaugarbar | Já |
Tennisvöllur | Já, gegn gjaldi |
Veitingastaður | Já |
WiFi | Frítt |
Þrif, oft í viku | 7 |
Öryggishólf | Já, gegn gjaldi |
Opinber stjörnugjöf
5 stjörnur