- Allt innifalið
- Barnalaug
- Sundlaug
- Veitingastaður
- Wi-Fi
Mjög góður gistivalkostur á Benidorm, sem býður fjölbreytta og góða þjónustu - vel staðsett ofarlega á Benidorm.
Hér er um að ræða góðan gistivalkost á Benidorm. Hótelið er með góðan hlaðborðsveitingastað og hér er einnig indverskur veitingastaður. Snarlbar yfir vetrartímann er á Rollings Bar, sem er 1 af 3 börum á hótelinu.
Hér er heilsulind og líkamsræktaraðstaða en greiða þarf aðgangseyri ætli maður að nýta sér þá þjónustu. Einhver skemmtidagskrá eða tónlistaratriði eru í boði á hótelinu, þó ekki alla daga en nánari dagskrá má nálgast á hótelinu, þegar út er komið.
Þá býður hótelið einnig aðgengi þráðlausu interneti (Wi-Fi) á sameiginlegum svæðum hótelsins og einnig í herbergjum..
Herbergin, eða svíturnar, eru rúmgóð og öll búin loftkælingu, sjónvarpi, síma, svölum, kaffi/tekatli og á baðherbergi er hárþurrka.
Hótelið hefur góða staðsetningu, ofarlega á Benidorm og ganga niður á strönd í rólegheitunum tekur um 15-20 mínútur.
Þjónusta þar sem allt er innifalið felur í sér að morgun-, hádegis- og kvöldverður er innifalinn í verði meðan á dvöl stendur og einnig drykkir, óáfengir og áfengir (innlendir), og gjarnan létt snarl á milli mála. Ef hótelið er með a la carte veitingastað er misjafnt hve oft er í boði að fara meðan á dvöl stendur, þá er einnig misjafnt hvort kvöldverður þar sé gegn aukagjaldi eða ekki. Þjónusta þar sem allt er innifalið er ávallt með einhverjum takmörkunum, upplýsingar um það fást við komu.
Vert er að taka fram að á hótelum sem bjóða þjónustu þar sem allt er innifalið er ekki sjálfgefið að bjóða megi gestum inn í garðinn eða á hótelið. Misjafnlega strangt er tekið á þessu á milli hótela en góð regla er að spyrjast fyrir í móttöku áður en von er á gestum sem dvelja á öðrum gististöðum.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Þá má nefna að þó að hótel bjóði aðgengi að interneti er vert að taka fram að internetsamband getur verið hægt og höktandi á ákveðnum álagstímum.
Einfaldlega mjög góður valkostur.
Um gistinguna
Bar | Já |
Barnalaug | Já |
Barnaleiksvæði | Já |
Barnarúm | Já, gegn pöntun |
Fjarlægð frá strönd | 1 km |
Hárblásari/Hárþurrka | Já |
Líkamsræktaraðstaða | Já |
Loftkæling | Já |
Móttaka | Já, allan sólarhringinn |
Sauna | Já |
Sjónvarp í herb/íbúð | Já |
Skemmtidagskrá | Já |
Sundlaug | Já |
Svalir/Verönd | Já |
Veitingastaður | Já |
WiFi | Já |
Þvottaaðstaða | Já |
Öryggishólf | Já, gegn gjaldi |
Opinber stjörnugjöf
4 stjörnur
Vefsíða
www.marconfort.com