- Loftkæling
- Miðsvæðis
- Veitingastaður
- Wi-Fi
Þetta hótel er staðsett í Porto Ribeira hverfinu (sem þýðir árbakki eða river bank), í sögulegri byggingum með útsýni yfir Douro ánna. Það má segja að það sé staðsett í hjarta gamla bæjarins með öllum þeim sjarma sem honum fylgir.
Á veitingastað hótelsins er ríkulegt morgunverðarhlaðborð á morgnanna en á kvöldin er þar a la carte veitingastaður, sem sérhæfri sig í portúgalskri matargerð. Þá er hér einnig líkamsræktaraðstaða.
Unnt er að tengjast þráðlausu interneti (Wi-Fi) á sameiginlegum svæðum hótelsins og í herbergjum.
Hótelið hefur nýlega verið endurinnréttað og býður fallega innréttuð herbergi, öll með loftkælingu, sjónvarpi, síma, öryggishólfi (gegn gjaldi) og á baðherbergi er hárþurrka.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu en Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Þá má nefna að þó að hótel bjóði aðgengi að interneti er vert að taka fram að internetsamband getur verið hægt og höktandi á ákveðnum álagstímum.
Á gististöðum hér þarf að greiða ferðamannaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Mjög gott hótel sem hefur frábæra staðsetningu.
Um gistinguna
A la carte veitingastaður | Já |
Bar | Já |
Fjöldi herbergja/íbúða | 90 |
Hárblásari/Hárþurrka | Já |
Internetaðstaða | Já |
Líkamsræktaraðstaða | Já |
Loftkæling | Já |
Lyfta | Já |
Minibar | Já, gegn gjaldi |
Móttaka | Já |
Ráðstefnusalir | Já |
Sími | Já |
Sjónvarp í herb/íbúð | Já |
WiFi | Já |
Þrif, oft í viku | 6 |
Öryggishólf | Já, gegn gjaldi |
Opinber stjörnugjöf
4 stjörnur
Vefsíða
www.carrishoteles.com