Hurghada - Makadí Bay - Heimsferðir
Hurghada - Makadí Bay
Egyptaland

Heimsferðir kynna með stolti áfangastaðinn Hurghada við Rauða hafið í Egyptalandi

Egyptaland er sögufrægt land og státar af einni elstu siðmenningu heims. Strandbærinn Hurghada er einn af vinsælustu áfangastöðum Evrópu- og mið Austurlandabúa en þangað sækja milljónir manna  ár hvert til að njóta sólar, hlýju og menningar. Hurghada hefur vaxið úr litlu fiskimannaþorpi í mjög vinsælan sólaráfangastað.

Ferðamenn eru Egyptum afar mikilvægir og þjónustustigið er hátt. Mikið er lagt uppúr öryggi og að ferðamönnum líði vel meðan á dvöl stendur. Á svæðinu búa um 100 þúsund manns og 90 prósent þeirra starfa við ferðaþjónustu. Hótelin eru flest öll mjög vel búin og starfsmenn afar hjálplegir við gesti sína.

Rauða hafið er vinsælt til köfunar enda er það bæði volgt og einnig tært. Það er alveg þess virði að skella sér í köfun eða snorkla við ströndina. Margar skemmtilegar ferðir eru í boði og flest hótel bjóða upp á einhverskonar köfunarferðir og mörg þeirra bjóða upp á köfunarnámskeið. 

Flest hótel Heimsferða eru í strandbænum Makadi Bay. Hurghada svæðið er nokkuð dreift og skiptist upp í  mörg svæði og hótelin tilheyra  ákveðnum ströndum eða strandsvæðum.  Á Makadi Bay eru langar sandstendur og aðgengi að sjónum er gott. Kóralrif liggja nálægt ströndinni þannig að auðvelt er að snorkla beint af ströndinni á nokkrum stöðum. Svæðið er vinsælt meðal kafara og snorklara.  Þar má sjá kóralif, litríkan fiska og jafvel skjaldbökur. Staðsetning Makadi Bay er í ca 30 mínútna akstursfjarlægð frá Hurghada flugvelli.  Svæðið er fjölskylduvænt og mörg hótelanna eru með barnaklúbba, vatnagarða og fjölskylduafþreyingu.  Svæðið er talið rólegt og friðsælt og ekta svæði til að njóta sólar og náttúru.  

Afþreying
Fjöldi skemmtilegra skoðunarferða er í boði frá Hurghada. Ein af vinsælustu skoðunarferðunum er dagsferð til Luxor en einnig er í boði dagsferð til Cairo þar sem m.a. er farið í þjóðminjasafn Egypta og heimsókn til Giza  þar sem hinu einstöku píramídar standa.  Einnig eru í boði styttri ferðir innan Hurghada svæðisins.
Hótelin
Flest hótel Heimsferða í Hurghada eru með öllu fæði og drykkjum inniföldum í verði. Um er að ræða morgun- hádegis- og kvöldverð ásamt snarli á milli máltíða og innlenda drykki. Flest hótel bjóða innflutta drykki gegn auka gjaldi. Stök hótel bjóða hálft fæði. Öll hótelin eru með Wi-Fi tengingu en hraðinn er misjafn eftir hótelum og hvar gestir eru staðsettir.  Í sumum tilfellum er hægt að kaupa hraðari tengingar. Stjörnugjöf miðast við opinbera stjörnugjöf í Egyptalandi.
Sjórinn
Rauða hafið er einstakt og það er ógleymanleg upplifun að synda þar á milli kóralrifa og skoða lífið í sjónum. Sjórinn er ljósblár og afar tær og hægt er að gleyma sér algjörlega við að snorkla eða kafa. Öll hótelin eru með mjög góða aðstöðu fyrir gesti á ströndinni.
Gjaldmiðill og verðlag
Gjaldmiðill í Egyptalandi er egypskt pund. Hægt er að skipta bæði dollurum og evrum á flestum hótelum og auðvelt er að nálgast hraðbanka. Mörg hótel eru með hraðbanka í móttökunni hjá sér. Verðlag er mjög hagstætt.  
Veðurfar
Meðalhiti í Sharm El Sheikh í febrúar er 24-27 gráður yfir daginn.
Flugið
Flogið er beint til Hurghada. Áætlaður flugtími er um 7 klst og 35 mínútur. Hægt er að kaupa sæti í vélinni í ýmsum verðflokkum.
Vegabréfsáritun
Íslenskir ferðamenn þurfa vegabréfsáritun til Egyptalands.  Áritunin er auðfengin og er hún afgreidd á flugvellinum við komu með aðstoð okkar starfsmanna. Kostnaður er ISK 6.500 pr mann og munu Heimsferðir innheimta gjaldið.
 

 

Kynnisferðir Heimsferða - Hurghada

 

                                                  Ferð hefst daginn eftir komu til Hurghada

2.900 kr á mann 
1.900 kr á mann, börn yngri en 12 ára                                                                                

Ferð: Skoðunarferð um Hurghada
Í þessari ferð heimsækjum við Hurghada og nágrenni.   Ekið er að hinni fallegu Al Mina moskvu og síðan haldið að kirkjunni þar sem stoppað er. Haldið er á markaðinn þar sem margt er um manninn og skemmilegt að skoða. Gestum gefst tækifæri á að skoða sig um og versla. Að lokinni ferð er gestum ekið aftur á hótel. Skemmtileg ferð í líflegu mannlífinu í Hurghada.  Frábær tækifæri til að kynnast Hurghada og strandbæjunum þar í kring.

                                                                         Dagsetning er í vinnslu

9.900 kr á mann
4.900 kr á mann, börn undir 12 ára                                                       
Ferð: Bátsferð
Haldið er af stað með bát og stoppað á þremur stöðum þar sem gefst tækifæri á að synda við kóralrif og uppgötva lífið neðansjávar. Gífulegur fjöldi fiska, sjóstjörnur, ígulker og krabbadýr.  Veiðistangir fyrir þá sem vilja renna fyrir fiski á þessum einstaka stað. Hádegisverður innifalinn. 
ATH. Ekki er boðið upp á áfengi um borð í bátnum, en boðið er upp á kaffi og gos. 
                                                        Dagsetningar í vinnslu

55.000 kr á mann
49.500 kr á mann, börn undir 12 ára                                                                              
Ferð: Dagsferð til Cairo - Píramídarnir, Sphinx og þjóðminjasafnið í Cairo 
Í þessari dagsferð heimsækjum við eitt af sjö undrum veraldar, Spfinx og píramídana í Giza ásamt hinu þekkta þjóðminjasafi Egyptalands. Flogið frá Hurghada  snemma morgun. Eftir klukkutíma flug er lent á Sphinx flugvelli í vesturhluta Cairo þar sem innlendur leiðsögumaður tekur á móti hópnum. Þaðan er ekið að Spinx og píramídunum í Giza. Eftir skoðunarferðina í Giza er haldið með hópinn í hádegisverð. Að hádegisverði loknum er haldið í Egypska safnið þar sem má finna grímu Tutankhamun og mikinn fjölda af heimsfrægum þjóðminjum. Flogið er aftur til Hurghada snemma kvölds og áætluð heimkoma á hótel er á milli kl. 21:00 og 22:00.
   
                                                                                  Dagsetningar eru í vinnslu

19.900 kr á mann
9.900 kr á mann, börn undir 12 ára                                                   
Ferð: Dagsferð til Luxor 
Í þessari ferð er ekið í rútu og brottför er að morgni. Innlendur leiðsögumaður leiðir hópinn í gegnum þennan einstaka áfangastað. Heimsókn á Vestur Bakkann og keyrt þaðan í Konungadalinn þar sem nokkur grafhýsi eru skoðuð. Þá er haldið að Colossi of Memno, tvær styttur sem tákna Amenopis III. Þá er höll Hatshepsut drottningar heimsótt. Þaðan er haldið til Karnak þar sem er að finna þyrpingu nokkura hofa. Í lok ferðar er farið að Luxor Temple. Innifalinn er hádegisverður á meðan á ferð stendur. 

 


Dagsetningar eru í vinnslu

8.500 kr. á mann    
4.400 kr. á mann, börn undir 12 ára                                                                                                                                     
Ferð: Jeppasafarí og kamalreið

Haldið af stað seinnipartinn og keyrt áleiðis í eyðimörkina. Þar gefst tækifæri á að halda í reiðtúr á kameldýri. Þessi harðgerðu dýr hafa fylgt þjóðinni frá örófi alda sem helstu fararskjótar eyðimerkurinnar, enda fætur þeirra hannaðir til að sökkva ekki niður í sandinn, þeir eru sterkir til burðar og geta verið án vatns svo dögum skiptir.  Eftir kamelreiðina er haldið í heimsókn í Bedouina tjald þar sem boðið er uppá te. Upplifum sólarlag í eyðimörkinni áður en haldið er aftur heim á hótel. Enskumælandi fararstjórn. 
   

Ath. Lágmarksþátttaka er í kynnisferðir en bóka þarf kynnisferðir í gegnum skrifstofu Heimsferða.  Dagsetningar geta tekið breytingum innan dvalartímans.

Ath. Hægt er að bóka kynnisferðir þegar ferð er bókuð á netinu eða í gegnum síma 595-1000. 

Vinsamlegast athugið að verð og tímasetningar eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, Heimsferðir áskilja sér rétt að breyta slíku án fyrirvara. Athugið að nákvæmar tímasetningar liggja endanlega fyrir rétt fyrir brottför og er öllum farþegum tilkynnt um þær.   

 

Dvalarstaðir
Stjörnugjöf
Svæði

JAZ Makadi Oasis Resort

Makadi Bay

JAZ Makadi Star

Makadi Bay

Iberotel Makadi Beach

Makadi Bay

Steigenberger Makadi

Makadi Bay

Cleopatra Luxury Resort

Makadi Bay

Jaz Makadi Saraya

Makadi Bay

Jaz Neo Saraya Palms

Makadi Bay

Labranda Royal

Makadi Bay

Labranda Club Makadi

Makadi Bay

Serenity Alpha Beach

Makadi Bay

Serenity Alma Heights

Makadi Bay