Sérferðir - Klassísk Pilates- og slökunarferð með Pilates Port til spænsku eyjunnar La Gomera 6-13 maí
Klassísk Pilates- og slökunarferð með Pilates Port til spænsku eyjunnar La Gomera 6-13 maí
BROTTFÖR06.05.2026
KEF-TFS (NO3924)
09:00
KEF-TFS (NO3924)
15:35
5 klst og 30 mínútur
BROTTFÖR13.05.2026
TFS-KEF (NO3925)
16:35
TFS-KEF (NO3925)
21:10
5 klst og 30 mínútur
a. Hotel Bancal, La Gomera. Tvíbýli með morgunverði
Heildarverð
579.800
VERÐ 289.900 KR

á mann m.v. 2 fullorðna

Bóka
b. Hotel Bancal, La Gomera. Tvíbýli með 1/2 fæði
Heildarverð
649.800
VERÐ 324.900 KR

á mann m.v. 2 fullorðna

Bóka
Innifalið í verði:
  • Flug til og frá Tenerife með Neos Air
  • 7 daga gisting á Bancal Hotel og Spa
  • Morgunverður.  (Hægt er að greiða sérstaklega fyrir hálft fæði við bókun)
  • Akstur milli Tenerife flugvallar og ferju
  • Einn tími í Pilates Port í Reykjavík
  • Pilates kennsla tvisvar á dag (Pilates grunnnámskeið)
  • Drykkur við komuna á hótel (Welcome drink)
     
Ekki innifalið í verði:


 Sigling með ferju milli Tenerife og La Gomera. (Pilates Port mun sjá um að bóka ferjuna fyrir alla farþega. Það verður gert nær brottför)

  • Skoðunarferðir
  • Spa meðferðir
Ferðalýsing

Langar þig að læra hina upprunalegu klassísku Pilates tækni frá grunni? 

Þá mælum við með að koma með í þessa ferð á vegum Pilates Port (sjá nánar um stúdíó hér) þar sem lögð verður áhersla á að kenna hina upprunalegu Pilates tækni frá grunni í einstöku umhverfi. Dvalið verður í 7 nætur á nýju heilsuhóteli “Bancal Hotel & Spa” sem staðsett er á rólegum stað í um 5-10 mín keyrslu frá höfuðborginni San Sebastian de La Gomera (sjá nánar um hótelið hér).

Þessi ferð er hönnuð bæði fyrir þá sem eru byrjendur í Pilates og einnig fyrir þá sem hafa stundað Pilates en vilja læra hina upprunalegu klassísku tækni. En hin upprunalega klassíska Pilates tækni var þróuð af frumkvöðli þess Joseph Pilates fyrir um 100 árum síðan og byggir á röð æfinga sem styðja hver aðra, styrking miðjunnar og annarra djúpvöðva líkamans, bættri líkamsstöðu og auknum sveigjanleika í baki. 

Ferðin hentar sérstaklega fyrir þá sem aldrei hafa prófað eða vilja læra klassískt Pilates frá grunni, finna fyrir bak- mjaðma-axlar óþægindum, sitja mikið og vilja bæta líkamsstöðu sína og þá sem vilja styrkja miðjuna eða auka liðleika sinn. Eftir dagana á La Gomera ferð þú heim með sterkan grunn í klassísku Pilatestækninni, betri tengingu við djúpvöðva líkamans, bætta líkamsstöðu og líkamssvitund. 

Á hverjum degi verður boðið upp á Pilates tíma tvisvar á dag með mismunandi áherslum, fyrri tíminn er áður en hópurinn fer saman í morgunmat og seinni tíminn ásamt stuttri fræðslu um aðferðina er seinnipart hvers dags. Jafnframt gefst nægur tími til þess að njóta og slaka á við sundlaugarbakka og á veitingarstöðum hótelsins, láta dekra við sig í heilsulindinni, fara í skoðunarferðir eða skoða svæðið á eigin vegum. 

 

Á hótelinu eru einnig líkamsræktaraðstaða og falleg heilsulind en greiða þarf aukalega fyrir aðgang að henni. Í heilsulindinni er að finna upphitaða laug, nuddpotta, saunu og gufubað ásamt fjölbreyttu úrvali af snyrti- og heilsumeðferðum.


Verð frá 289.900
m.v. 2 saman i herbergi með morgunverði.


Nánari upplýsingar í síma 595-1000 (Dagbjört) eða í gegnum netfangið sala@heimsferdir.is