á mann m.v. 2 fullorðna
Beint flug með Neos air til Verona. Innirituð taska. Hótel í níu nætur með morgunverði. Þrjú mismunandi 3ja stjörnu hótel. Þrír málsverðir. Ferð í kláf. Almenningssamgöngur á ferðadögum. Allur akstur og siglingar skv. leiðarlýsingu. Aðgangur að Isola del Garda eyjunni ásamt fordrykk. Íslensk fararstjórn.
Ferðir á frjálsum dögum. Þjórfé. Gistináttaskattur sem greiddur er á hótelinu.
Landslagið, gróðurinn og fögur fjallasýn ramma inn Gardavatn, stærsta stöðuvatn Ítalíu.
Gardavatnið teygir sig inn í þrjú héruð, Veneto, Lombardia og Trentino-Alto Adige og er margrómað fyrir náttúrufegurð, há fjöllin sem umlykja vatnið en einnig fyrir sögulegar minjar og vínframleiðslu. Gönguferðir og einstök upplifun
Markhópur þessarar ferðar eru heldri borgara sem vilja einhverja hreyfingu í fríinu en á rólegu nótunum. Göngurnar eru á bilinu 5 - 8 km á dag, með lítilli hækkun og ættu að vera á allra færi. Góð hvíld inni á milli.
Bærinn Garda ið Gardavatn er heillandi bær með rúmlega 4000 íbúa og stendur við fallega, afmarkaða vík eða flóa. Hann er þekktur fyrir fallegan vatnsbakka og hinn sögulega miðbæ. Byggingarnar í bænum bera vott um þróun byggðar á þessum stað og þar er þó nokkra gimsteina að finna.
Það er svo sannarlega hægt að mæla með göngutúr út á tangann, Punta San Vigilio, sem er fallegt svæði með útsýni yfir hafmeyjuströndina.
Gist verður eina nótt í Verona á Hotel Leonardi sem er 3ja stjörnu hótle í útjaðri Vreona. Við notum tækifærið og skoðum Verona frá ýmsum sjónarhornum og virðum fyrir okkur borg ástarinnar og kynnumst sögu hennar..
Daginn eftir færum við okkur yfir til Gardavatns og göngum síðasta spölinn þangað sem er ógleymanleg upplifun. Farangurinn verður keyrður á hótelið sem við dveljum á næstu vikuna. Hotel Bisesti heitir hótelið sem við dveljum á í Garda. Það er frábærlega staðsett og stutt er niður á vatnsbakkann. Allt er í seilingarfjarlægð. Góð sundlaug og sólbaðsaðstaða er við hótelið þar sem hægt er að láta líða úr sér eftir göngur dagsins. Á hótelinu við hliðina er boðið upp nudd af ýmsum toga og snyrtimeðferðir.
Veitingastaður er á hótelinu, þar sem hægt er að snæða kvöldverð, nú eða prófa einhvern af fjölmörgum veitingastöðum í bænum. Hótelið býður upp á léttan hádegisverð alla daga og veitingastaður er á hótelinu.
Herbergin eru öll með loftkælingu og sum þeirra eru með svölum.
Síðustu nóttina gistum við uppi í fjöllunum þar sem við förum í dásamlega göngu í Madonna della Corona kirkjuna sem stendur á ótrúlegum stað, hoggin inn í klettinn. Við höldum svo upp á góða daga við Garda með því að borða saman síðasta kvöldið.