á mann m.v. 2 fullorðna
á mann m.v. 2 fullorðna
Flug með Neos air í beinu flugi til Verona. Ein innrituð 20 kg taska ásamt handtösku. Miði í góð sæti á Kristals-AIDA í Arenunni. Gisting á 3ja stjörnu plús hóteli við Garda í 5 nætur og 4ra stjörnu hóteli í Verona á design herbergjum 2 nætur. Öll gisting með morgunverði. Allur akstur og siglingar sem getið er um í ferðalýsingu. Þrír málsverðir. Vínsmökkun. Fræðsla um Maria Callas, tónlist og söngvara sem tengjast innihaldi ferðarinnar. Staðarleiðsögn og hvíslur eins og við á. Fararstjórn og fræðsla allan tímann.
Gistináttaskattur á hótelum og þjórfé eins og við á hverju sinni.
Markhópur ferðarinnar er tónlistar- og söngáhugafólk og einlægir Maria Callas aðdáendur. Við höldum upp á nýlegt 100 ára fæðingarafmæli Maria Callas og förum á staði sem tengjast hennar lífi á Ítalíu. Lífshlaup söngkonunnar verður rakið í ferðinni og hennar minnst í öðru hverju orði.
Þar gefst kostur á að fara á ógleymanlega nýlega sýningu á AIDA eftir VERDI sem fengið hefur nafnið AIDA in CRISTALLO til aðgreiningar frá hinni hefðbundnu AIDA uppfærslu eftir Zeffirelli. Sýning föstudagskvöldið 19. júní, á kvenréttindadaginn, daginn áður en haldið er heim.
Gardavatn er staður sem allir elska og þangað er hægt að koma aftur og aftur og uppgötva nýja og spennandi staði í hverri ferð. Það eiga allir sinn uppáhaldsbæ við vatnið og það átti Maria Callas líka.
Dvalið verður á hótelinu Conca d‘Oro sem er metið 3ja stjörnu plús. Hótelið stendur alveg niður við vatnið. Hótelið er rótgróið og fjölskyldurekið með smekklega innréttuðum herbergum. Tvíbýlin snúa ýmist í áttina að landi, götumegin eð eða að vatninu. Góð aðstaða er á efstu hæð hótelsins til að sóla sig og njóta útsýnisins yfir vatnið. Steinsnar frá eru svo strandir þar sem hægt er að leigja bekki og njóta þess að dýfa sér í vatnið.
Farið verður í skoðunarferðir og siglt vítt og breitt um vatnið en einnig er möguleiki að slaka á í bland við skipulagðar ferðir. Við förum til Sirmione þar sem Maria Callas og eiginmaður hennar áttu hús og dvöldu þar oft og tíðum. Við göngum um bæinn og út á hinn stórkostlega tanga þar sem Catullo rústirnar er að finna.
Við færum okkur til Verona fyrir síðustu tvær næturnar sem verða vel nýttar til að finna frægðarspor Maria Callas í Verona. Dvalið verður á Hotel Leopardi sem er 4ra stjörnu hótel, vel staðsett í útjaðri miðbæjarins.
Tónlistarlífið á þessum slóðum á sumrin er fjölbreytt og viðburðir tíðir. Þegar nær dregur gerir fararstjóri samantekt um það sem verður í boði á tónlistarsviðinu og gerir ráðstafanir til að komast til að hlusta á eitthva af því sem í boði verður.
Í ferðinni býður fararstjóri jafnframt upp á fræðslu um söngdívuna elskuðu sem átti sín bestu ár á þessu svæði. Við munum nota hvert tækifæri til að kynnast lífi og starfi Maria Callas betur og hverning hennar saga er tengd þessu svæði og Ítalíu yfir höfuð.