á mann m.v. 2 fullorðna
Flug með Finnair frá Keflavík til Tókýó með millilendingu í Helsinki, frá Osaka innritaður farangur allt að 23 kg. Gisting á 4* hótelum í 14 nætur með morgunverði. Aðgangur að söfnum og stöðum sem koma fram í ferðalýsingu, lestaferðir, 11 hádegisverðir og 5 kvöldverðir. Íslensk fararstjórn og erlendir staðarleiðsögumenn.
Máltíðir sem ekki eru taldar upp í ferðatilhögun og annað tilfallandi sem getur komið upp í ferðinni
ATH. Lágmarksþátttaka í þessari ferð er 18 manns. Við áskiljum okkur rétt til að fella ferðina niður náist sú þátttaka ekki.
Japan – 15 daga ævintýraferð
Upplifðu ævintýri lífsins í landi hinnar rísandi sólar – þar sem fornar hefðir og nútímahönnun renna saman við stórbrotna náttúru.
Í þessari ferð upplifum við allt það sem gerir Japan einstakt: líflegu stórborgina Tókýó með musteri, markaði og glitrandi skýjakljúfa, kyrrláta náttúrufegurð við Fuji-fjall og tært lindarvatn Oshino Hakkai, heillandi vatnasvæðið Kawaguchi og friðsælan garð Oishi Park. Við heimsækjum söguleg þorp eins og Shirakawago, sem er á heimsminjaskrá UNESCO, og njótum dásemda Kyoto með gullhofinu Kinkakuji, bambusskóginum í Arashiyama og hefðbundinni teathöfn. Í Hiroshima heyrum við áhrifaríka sögu við Friðarminnismerkið og siglum til hinnar helgu Miyajima-eyju. Kanazawa býður upp á stórbrotinn Kenrokuen-garð og söguleg tehverfi, og á leiðinni gefst okkur tækifæri til að tína ferska ávexti beint úr görðunum – allt eftir árstíma.Heimsferðir bjóð upp spennandi vorferð til Japan á þessum tíma eru kirsuberjatrén í blóma. Við byrjum ferðina í Tókýó, höfuðborg Japans, þar sem við kynnumst nútímalegri hlið Japan en í þessari stórborg er að finna ýmiss Shinto- og Búddahof en einnig háhýsi og margmenni sem streyma um götur borgarinnar. Það er auðvelt að verða gagntekin í þessari borg þar sem það er einfaldlega svo mikið að skoða og sjá.
Á leið okkar um landið munum við aðallega ferðast með rútu, en einnig með hraðlest. Flogið til Tókýó Narida) og frá Osaka. Fyrstu 4 næturnar er gist í Tókýó, síðan 1 nótt í Matusmoto, 1 nótt í Kanazawa, 1 nótt í Nagoya, 3 nætur í Kyoto, 2 nætur í Okoyama, 2 nætur í Osaka og að lokum síðustu nóttina verður gist í Hamamatsu.
Verð á mann í tvíbýli 999.900
Verð í einbýli 1.275.900
Flugáætlun:
| Flugnúmer | Dagsetning | Flugvöllur | Brottför | Flugvöllur | Lending |
| AY0992 | 6. apríl | Keflavík | 08:35 | Helsinki | 15:00 |
| AY0073 | 6. apríl | Helsinki | 17:45 | Tókýó (NRT) | 13:05+1 |
| AY0062 | 21. apríl | Osaka | 22:25 | Helsinki | 05:30 +1 |
| AY0991 | 21. apríl | Helsinki | 07:10 | Keflavík | 07:50 |