Sérferðir - Mexikó - Playa de Carmen 7-22 nóvember 2025 - UPPSELT
Mexikó - Playa de Carmen 7-22 nóvember 2025 - UPPSELT
Ekki hægt að bóka
Því miður eru flug ekki í boði eða uppseld fyrir umbeðinn fjölda farþega
Innifalið í verði:

Flug með Icelandair og WestJet. Allir skattar og gjöld innifalin auk farangurs.  Gisting í tvíbýli með morgunmat á tilgreindum hótelum. þar með talið ein nótt í Toronto á útleið. 
Allur akstur á milli flugvalla og gististaða. Íslensk fararstjórn auk þjónusta erlendra leiðsögumanna

 

 

 

Ekki innifalið í verði:

Ekki kostnaður við vegabréfsáritanir eða afgreiðslu á landamærum.  Ekki þjórfé, persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega. 

Athugið: Dagskrá geti breyst t.d. af völdum veðurs, ófyrirsjáanlegra aðstæðna eða góðra ástæðna/hugmynda.

Ferðalýsing

ÞESSI FERÐ ER UPPSELD

 

Að slaka á í sól og hita við strendur Mexíkó, njóta náttúrufegurðarinnar og kynnast heillandi sögu og menningu landsins. Mexíkó er nefnilega ekki bara sombrero, tacos og tequila. Stórbrotin náttúrufegurð, ólíkir þjóðarhópar og dramatísk saga landsins mætist í litskrúðugri menningu sem lætur engan ósnortinn.

Komdu með okkur í ævintýraferð til Mexikó undir öruggri leiðsögn íslensks fararstjóra.  Flogið er með Icelandair til Toronto í Kanada og gist eina nótt á út útleið.  Flogið næsta morgun með WestJet til Cancun. Sama flugleið tilbaka en þá er farið af stað uppúr hádegi að staðartíma, flogið til Toronto með WestJet og samdægurst áfram til Keflavíkur.  Brottför frá Mexikó er 21 nóvember og lent á Íslandi að morgni 22. nóvember

Fjöldi valfrjálsra skoðunarferða eru í boði á meðan á dvöl stendur.

Hægt er að velja á milli tveggja hótela HM Playa de Carmen (3.5 stjörnur)  og The Reef 28 (4 stjörnur).  Sjá myndir frá hótelum hér til  hægri.
 
Áfangastaðurinn er Playa del Carmen sem er einhver ljúfasti strandbær í heimi og gerólíkur þeim stöðum sem Íslendingum hafa kynnst í sólarlandaferðum sínum. Þarna eru hótelin lágreist og götulífið öruggt og sjarmerandi. Í Playa del Carmen komast ferðamenn í kynni við krassandi matargerð, ólgandi mexíkanska menningu og kynnast gestrisnum heimamönnum. Bærinn stendur við Karíbahafið sem er heillandi með tærum og ilvolgum sjónum og einu stærsta kóralrifi í heiminum þar sem hægt er að snorkla eða kafa undir leiðsögn heimamanna.

 

10 ástæður til að heimsækja Mexíkó

Ströndin

Í hugum margra sem ferðast á suðrænar slóðir skiptir ekkert meira máli en hin fullkomna strönd. En fullkomnun er afstæð eins og fegurðin og það eru ekki allir strandaglópar sammála um hvað fullkomna ströndin hafi til brunns að bera. Strandlengjur Mexíkó, hvort sem það er við Karabískahafið, Kyrrahafið eða Cortez-sjó, bjóða uppá margar birtingarmyndir hins fullkomna strandlífs. Silkimjúkan púðursand eða grýttar klettastrendur, mannlausar paradísir með rólegum sundhöfnum eða fjölsetnar sjávarsíður þar sem stemning og tónlist ráða ríkjum.

 

Maturinn
Mexíkósk matargerð snýst um annað og meira en að nærast. Matarhefðin er í raun hornsteinn í menningararfi þjóðarinnar. Mexíkósk matargerð er talin einstaklega vönduð og hlaðin merkingu og sannkölluð veisla fyrir braðlaukana. Matarhefðin er komin á lista UNESCO yfir óumdeilanlega menningarafleifð, en þar var sérstaklega vakin athygli á sjálfbærni í matarhefðum Michocanríkis. Að borða í Mexíkó er sérstök upplifun, það snýst nefnilega ekki aðeins um að matast heldur að bragða af sögu og menningu landsins.

Týndu borgirnar

Það er skylda hvers ferðalangs um Mexíkó að taka sér tíma virða fyrir sér hinar mikilfenglegu týndu borgir - sumar þeirra mörgþúsundmeð berum augum til að átta sig á áhrifum þeirra og jafnvel óhugnarlegum mikilfengleika. Sumar eru þær mörþúsund ára gamlar og margar hverjar hafa verið þaktar úfnum frumskógi öldum saman svo fornleifauppgröfturinn á svæðinu leiðir sífellt í ljós nýjar uppgötvanir. Það er um að gera að kíkja reglulega því það er alltaf eitthvað nýtt að sjá í hverri heimsókn.

Listin

Listsköpun hefur ætíð verið í hávegum höfð í samfélögum Mexíkó. Allt frá tímum pýramída Azteca til gróskumikillar nútímalistar, er listin samofin menningu Mexíkó og er hún alltumlykjandi. Listin er kraumandi allsstaðar, bæði á söfnum þar sem hægt er að skoða listaverk eftir mexíkóska listamenn á borð við Fridu Kahlo og Diego Rivera, sem og á mörkuðum, í galleríum og jafnvel í margrómuðum og skrautlegum mexíkóskum kirkjugörðum. Mexíkó er fullkominn áfangastaður fyrir sanna listunnendur sem vilja kynnast samfélagi sem ýtir undir gróskumikla listsköpun nútímalistamanna og hin sögulega list fyrri tíma er í hávegum höfð.

Náttúruundrið

Í Mexíkó má finna sýki sem er lengra og dýpra en Grand Canyon, eldfjall sem skákar Kilimanjaro og næst stærsta kóralrif í heiminum. Mikilfenglegustu náttúruundur Mexíkó eru kannski ekki þau þekktustu, en ef tekið er tillit til mikilfengleika þeirra þá eru þau í flokki með þeim mögnuðustu í heiminum. Fjölbreytnin í vistkerfinu er ótrúleg, frá freðmýri til frumskóga, eyðimerkursanda til sólarstranda, sem gerir Mexíkó að einstakri perlu sem hentar vel ævintýraþyrstum ferðalöngum sem vilja sjá heiminn frá mörgum sjónarhornum.

Menningararfleifðin

Í Mexíkó eru fleiri en 30 borgir og þar af 10 sögulegar borgir sem eru á heimsmynjaskrá UNESCO. Hver þessara sögulegu borga stendur fyrir mismunandi kafla í sögu landsins, Campeche er borg hinna miklu veggja og arkitektúrinn er í barrokkstíl nýlendutímans. Oaxaca með sínum sögulega miðbæ sem er hannaður eins og skákborð, og síðast en ekki síst Mexico City sem er meðal annars þekkt fyrir hina frægu “chinampa” eða fljótandi garða.

Ævintýri

Með fjallgörðum, eldfjöllum, síkjum og stöðuvötnum má finna ýmsar spennandi áskoranir fyrir vant ævintýrafólk og nýgræðinga sem vilja prófa eitthvað nýtt. Hér getur þú sprangað með svölum í risastórum helli, fullkomnað baksundssundtökin þín við hliðina á fossi í frumskóginum, eða farið á hestbaki upp á fjall og hangið í sviflug fram af fjallinum.  Í Mexíkó eru kjöraðstæður fyrir flúðasiglingar, klifur, köfun og gönguferðir til að uppgötva þann hluta landsins sem er mörgum kílómetrum frá strandbörum og túristatroðnum hótelkeðjum.

Dýralíf

Í Mexíkó er dýralífið ekki til trafala heldur er það í raun eitt mesta aðdráttarafl landsins. Seint í október flögra hundruðir þúsunda kóngafiðrilda að Michocanfjalli til að komast í vetrarfrí frá kaldari slóðum. Coretez-haf, hafflöturinn sem skilur að Mexíkó meginlandsins og Baja Kaliforníu er svo krökkt af fögrum sjávarlífverum að Jaques Cousteau kallaði það helsta fiskabúr heimsins. Slíkt er úrvalið að enginn ferðalangur verður ósvikinn af því að kynna sér stórbrotið dýralíf landsins í sínu náttúrulega umhverfi.

Vatnsíþróttir

Sjórinn er alltumlykjandi í Mexíkó. Næstum tugþúsund kílómetra strandlína býður upp á fullkomnar aðstæður fyrir hverskyns vatnsíþróttafólk hvort sem það eru brimbrettakappar, siglingafólk, sundmenn, kafarar og fiskveiðifólk. Hægt er að velja á milli hins sægræna Karabíska hafs, hins óheflaða Kyrrahafs og ylvolga og fallega Cortez-hafs svo hvert sem sjávarsportið er, Mexíkó býður upp á hinar fullkomnu aðstæður til að stunda það.

Menning

Fyrir landnám Spánverja á sextándu öld var landið, sem síðar varð að Mexíkó, heimili hundruða frumbyggjaþjóðflokka. Þó að nýlendustefnan hafi gjörbylt nánast öllu á fimm öldum er menning frumbyggjanna enn þá í hávegum höfð í Mexíkó en þeir eru enn um tíu prósent af íbúum landsins. Áhrifa frumbyggjanna gætir helst í menningu og tungu íbúa í Oaxaca, Veracruz, Chiapas og Puebla.