Sérferðir - Hreyfiferð um söguslóðir á Norður-Ítalíu 18. - 25. maí 2025
Hreyfiferð um söguslóðir á Norður-Ítalíu 18. - 25. maí 2025
Ekki hægt að bóka
Því miður eru flug ekki í boði eða uppseld fyrir umbeðinn fjölda farþega
Innifalið í verði:

Flug með Play air til Feneyja, innrituð taska 20 kg,  Hótel í 7 nætur með morgunverði. Allur akstur og lestarmiðar skv. dagskrá. Aðgangur í kastala. Aðgangur í kirkju í Aquileia. Nestispakki.  Vínsmökkun. Staðar- og gönguleiðsögn skv. dagskrá og  íslensk fararstjórn 

Ekki innifalið í verði:

Ferðir á frjálsum dögum. Þjórfé. Gistináttaskattur sem greiddur er á hótelinu.

Ferðalýsing

Gorizia Menningarborg Evrópu 2025 - hreyfiferð um söguslóðir

Friuli Venezia-Giulia á Ítalíu

 

Þetta ítalska hérað með langa nafninu, Friuli Venezia-Giulia, er nyrst og austast á Ítalíu og á landamæri að Austurríki og Slóveníu. Borgin Gorizia sem dvalið verður í, á sér einstaka sögu og er útnefnd menningarborg Evrópu árið 2025

Skilyrði fyrir útnefningunni eru m.a. að standa vörð um og efla fjölbreytileika menningarheima í Evrópu og varpa ljósi á sameiginleg einkenni. Þar kemur borgin Gorizia eða Nova Gorica eins og hún heitir á slóvensku, sterk inn. Það verður því mikið líf allt um kring og ferðamálayfirvöld héraðsins bjóða þennan fyrsta hóp frá Íslandi velkominn í heimsókn og hafa lagt okkur lið með skipulag. 

Markhópurinn fyrir þessa ferð er fólk á besta aldri, sem vill létta hreyfingu í fríinu í bland við að kynna sér sögu og atburði sem hafa átt sér stað á landamærunum. Saga svæðisins er margslungin og náttúrufegurðin einstök. 

Göngudagarnir eru fimm, ýmist hálfir eða heilir dagar þar sem við skoðum okkur um í himneskum fjallasölum og hásléttum, undurfögrum dalsbotnum eða á söguslóðum. Eins heimsækjum við borgir og bæi eins og Trieste, Aquileia, Sagrado, Grado, Tarvisio og kastalar og kastalavirki verða reglulega á vegi okkar. 

Andrúmsloftið í Gorizia er með austurrísku yfirbragði sökum fyrri yfirráða Habsborgara á þessum slóðum, en austurrísk-ungverska heimsveldið var hér við völd fram að fyrra stríði. Svæðið var svo innlimað í Ítalíu árið 1918. Hér var þungamiðja átaka á tímum fasista og einnig í seinni heimsstyrjöldinni. Bænum var skipt á milli stríðandi fylkinga og reistur var múr, einskonar tákn um aðskilnað austurs og vestur í kalda stríðinu. 

Árið 2004, þegar Slóvenía gekk í Evrópusambandið, voru landamærin lögð niður og nú er fyrri aðskilnaður orðin að sameiningartákni. Þessir samvöxnu bæir hafa fengið útnefninguna menningarborg Evrópu árið 2025, einmitt vegna þessa. Sambúð þessara tveggja bæja sem áður aðgreindi stór „Berlínar-múr“ er núna fyrirmynd af friðsamlegra samskipta og samstarfs.

Annars er Gorizia mikil listaborg og margt hægt að finna sér til dundurs. Stutt er í gamla bæinn, kastalann og fjölmörg söfn sem þar er að finna. Þaðan er líka auðvelt að komast í þær gönguferðir sem skipulagðar eru á meðan á dvöl stendur.

Hotel Gorizia Palace er í Best Western hótelkeðjunni og er nútímalegt 4 stjörnu hótel staðsett í hjarta borgarinnar. Herbergin eru nýuppgerð og  innréttuð í einföldum stíl. Hótelið leggur áhersla á sjálfbærni og rekin er græn stefnu í umhverfismálum. 

Útbúnaðarlisti

Góðir en léttir gönguskór, utanvegaskór ættu að duga fyrir flesta. Ökklastuðningur alltaf góður samt. Göngustafir fyrir þá sem vilja. Hattur eða eitthvað til að hylja höfuðið er alveg nauðsyn, ásamt góðum sólgleraugum og sólarvörn. Þægilegur göngupoki og vatnsbrúsi til að fylla á. Annar búnaður er undir hverjum og einum komið og hvað hentar best persónulega.