Hotel Del Porto
Hótellýsing

 

Vel staðfesthótel í bænum Torri del Benaco

Hótelið er staðsett miðsvæðis  í bænum Torri del Benaco  en þar má finna verslanir, veitingastaði og bari. Stutt að ganga að vatninu og í miðbæinn. Einnig er stuttur akstur í alla helstu þjónustu og afþreyingu.

Á hótelinu er fallegur garður sólbaðsaðstöðu með sólbekkjum ATH. ekki það er ekki sundlaug á hótelinu. 

Herbergin eru snyrtilega innréttuð í og búin öllum helstu þægindum eins og  loftkælingu, öryggishólfi, sjónvarpi, síma og inná baðherbergi má finna hárþurrku.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Fallegt og rólegt hótel nálægt miðbæ!