Virðulegt hótel í bænum Garda
Hótelið er staðsett miðsvæðis í bænum Garda en þar má finna verslanir, veitingastaði og bari. Stuttur gangur í gamla miðbæinn. Einnig er stuttur akstur í alla helstu þjónustu og afþreyingu.
Á hótelinu er fallegur garður með sundlaug, sólbaðsaðstöðu með sólbekkjum og sundlaugarbar. Veitingastaður og bar eru á hótelinu, á barnum er hægt að sitja bæði inni og úti á fallegri verönd.
Herbergin eru innréttuð í virðulegum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, öryggishólfi, sjónvarpi, síma og inná baðherbergi má finna hárþurrku.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Fallegt og rólegt hótel nálægt miðbæ!