Valamar Meteor er 4 stjörnu strandhótel í Makarska sem býður upp á nútímalega gistingu, góða sundlaugaraðstöðu, spa og fjölskylduvæna þjónustu. Hótelið er vel búið og hentar bæði pörum og fjölskyldum sem vilja þægilegt og líflegt sumarfrí.
Hótelið er staðsett beint við sjóinn, með stutta göngu í miðbæ Makarska þar sem er mikið af veitingastöðum, börum og verslunum. Umhverfið er mjög fallegt, með Adríahafið að framan og Biokovo-fjallgarðinn að baki, sem skapar bæði afslappaða strandstemningu og líflegt bæjarlíf.
Sameiginleg aðstaða hótelsins er mjög góð, fallegur garður og gott svæði við sundlaugina. Þá er einnig innilaug og heilsurækt og likamsræktaraðstaða. Á þessu hóteli er hlaðborðsveitingastaður þar sem bæði morgun- og kvöldmatur er í boði. Matseðilinn er fjölbreyttur. Þá er einnig matsölustaður og bar á vegum hótelsins við sjóinn.
Fallegt og notalegt hótel með einstaka staðsetningu, alveg við sjóinn og stutt frá miðbæ Makarska.