MC Alojamientos - One apartments
Hótellýsing

Trebal One er einföld íbúðagisting á Benidorm staðsett í rétt um 300 metra fjarlægð frá Levante ströndinni.

Eins herbergja premium íbúðirnar eru um 65 fm.

Íbúðirnar eru einfaldar með svölum. Í íbúðunum er eldhús, baðherbergi, lítil stofa og eitt eða tvö svefnherbergi. Ýmislegt er til staðar í íbúðinni s.s. ísskápur, örbylgjuofn, þvottavél, ristavél, kaffivél og helluborð. Í stofunni er svefnsófi og sjónvarp ásamt öryggishólfi. 

Stutt er í alla afþreyingu en mikið líf er á Benidorm og því auðvelt að finna eitthvað við sitt hæfi. Terra Mitica er í 10 km fjarlægð og vatnsrennibrautagarðurinn Aqualandia er í um 5 km fjarlægð.

Útisundlaug er á gististaðnum og er lítill bar við hana.  Gististaðurinn er staðsettur stutt frá Levante ströndinni og stutt í alla afþreyingu.

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.


Lykil fyrir íbúð þarf að sækja milli kl. 16.00 - 19.00 

tel: +34 966 88 92 90  

Gestir þurfa að yfirgefa íbúðirnar kl. 10:00 á brottfarardag.         

Ath greiða þarf Tryggingu 200 EUR við innritun á hóteli.