Sole Relax & Panorama
Hótellýsing

Fallegt hótel í Riva del Garda

Sole Relax & Panorama er fallegt og vel staðsett hótel í bænum Riva del Garda. Bærinn er norðan megin við Gardavatnið og næststærsti bærinn við vatnið. Hótelið er eitt af sögulegu hótelum bæjarins, frá byrjun 20. aldar.  Hótelið er staðsett miðsvæðis í bænum, alveg við vatnið og því stutt í alla þjónustu. Fallegt útsýni er yfir vatnið og 200 m gangur að strönd.

Á hótelinu er veitingastaður og pizzastaður. Hægt er að sitja undir berum himni með fram vatninu og snæða morgunverðinn. Á þaki hótelsins er bar með fallegu útsýni yfir vatnið. Einnig er á hótelinu gömul og rótgróin ísbúð sem er þekkt fyrir ekta ítalskan ís. 

Hægt er að fá reiðhjól lánuð á hótelinu. Hjólageymsla er á hótelinu en frá Riva del Garda eru margar skemmtilegar hjóla– og gönguleiðir. Á hótelinu eru nuddpottur, sauna og hvíldarherbergi - aðgangur að heilsulindinni er gegn auka gjaldi. 

Herbergin eru innréttuð í sjarmerandi stíl með loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi, minibar, síma og á baðherbergi má finna hárþurrku. Ath það eru ekki svalir á öllum herbergjum.

Ath. að aukagjald fyrir barnarúm 10€ á nótt greiðist á hótelinu, en þarf að bókast í gegnum Heimsferðir.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Sjarmerandi hótel og góð staðsetning!