Hótel staðsett nálægt gamla bænum í Benidorm!
Hótelið er staðsett miðsvæðið í Benidorm um 500 metra frá gamla bænum. Í nágrenni við hótelið eru verslanir og barir. Levante ströndin er í um 20 mín göngufjarlægð frá hótelinu
Móttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er líkamsræktaraðstaða.
Á hótelinu er útisundlaug með sólbaðsverönd með sólbekkjum og sólhlífum. Einnig má finna hlaðborðsveitingastað sem býður uppá alþjóðlega rétti. Einnig er bar og verönd þar sem hægt er að sitja úti. Á kvöldin er í boði skemmtun á vegum hótelsins.
Herbergin eru innréttuð í einföldum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi, síma og á baðherbergi má finna hárþurrku og stækkunarspegil. Ísskápur fæst leigður á herbergi gegn gjaldi.
Hótelið er við hliðna á opnu tónleikaleikhúsi og eru stundun tónleikar á sumrin.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Stutt í verslanir og veitingastaði!