Park Hotel Casimiro
Hótellýsing

Park Hotel Casimiro fallegt hótel sem liggur við strendur Gardavatn í San Felice del Benaco. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Veitingastaður með útsýni yfir vatnið er á hótelinu og er þar borinn fram morgunverður.
Á hótelinu eru tvær útisundlaugar auk þess sem strönd er fyrir framan hótelið, heilsulind og innisundlaug ásamt líkamsrækt má finna á staðnum líka. Hægt er að bóka sér tíma í nudd gegn gjaldi.

Á þaki hótelsins er sólbaðsaðstaða aðeins fyrir fullorðna þar sem eru sólbekkir og heitur pottur.
Barnaklúbbur er á hótelinu fyrir 4-12 ára.

Hægt er að leigja rafmagnshjól á hótelinu fyrir hjólaferðir um nágrennið.

Herbergin eru fallega innréttuð í nýtískulegum stíl. Í herbergjunum er sjónvarp, öryggishólf, sími og á baðherbergi er hárþurrka.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.