Parc Hotel Oasi er einfalt hótel í þorpinu Garda. Frá hótelinu eru u.þ.b. 1.5 km niður að Gardavatninu og 1 km frá miðbæ Garda.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er bar sem er opinn frá 10:00 til miðnættis og veitingastaður með sem býður upp á úrval af ítölskum og alþjóðlegum réttum.
Hótelgarðurinn er gróðursæll með ólífutrjám, þar má finna stóra sundlaug, sólbekki og sólhlífar.
Herbergin eru einföld, öll búin helstu þægindum. Á öllum herbergjum er sjónvarp og öryggishólf. Loftkæling er eingöngu í boði í júlí og ágúst.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu í gestamóttökunni, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Einföld gisting á hagstæðum kjörum.