Parc Hotel Gritti & Verona borg
Hótellýsing

7 nætur við Gardavatnið og 2 nætur í Verona

Hér bjóðum við uppá samsetta ferð þar sem dvalið er við Gardavatnið í 7 nætur og 2 nætur á 4 stjörnu hóteli í borginni Verona. Um 10 dögum fyrir brottför kemur í ljós á hvaða hóteli verður dvalið á í Verona. 

Parc Hotel Gritti er fallegt og vel staðsett hótel í bænum Bardolino og örstutt frá Lido Mirobello ströndinni. Um 400 m gangur er inni miðbæ Bardolino og stutt er í alla þjónustu. 

Fallegur sundlaugargarður er á hótelinu með sólbekkjum og sólhlífum. Á hótelinu eru 2 veitingastaðir, hlaðborðsveitingastaður, bar og sundlaugarbar. 

Á hótelinu er nuddpottur, gufubað og hvíldarherbergi. Hægt er að fá nuddmeðferðir og ýmsar snyrtimeðferðir gegn gjaldi. Einnig er upphituð innisundlaug og líkamsrækt. Morgunverður er innifalinn með gistingunni við Gardavatnið og í Verona. 

Hálft fæði er innifalið (þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður) á meðan dvalið er við Gardavatnið, en eingöngu morgunverður í Verona. 

Herbergin eru innréttuð í þægilegum stíl með loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi, minibar, síma og á baðherbergi má finna hárþurrku. Á öllum herbergjum má finna baðslopp og inniskó.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Góður kostur til að slaka á og njóta í fríinu!