Huggulegt hótel við Gardavatnið
Parc Hotel Gritti er vel staðsett hótel í bænum Bardolino og örstutt frá Lido Mirobello ströndinni. Um 400 m gangur er inni miðbæ Bardolino og stutt er í alla þjónustu.
Fallegur sundlaugargarður er á hótelinu með sólbekkjum og sólhlífum. Á hótelinu eru 2 veitingastaðir, hlaðborðsveitingastaður, bar og sundlaugarbar.
Á hótelinu er nuddpottur, gufubað og hvíldarherbergi. Hægt er að fá nuddmeðferðir og ýmsar snyrtimeðferðir gegn gjaldi. Einnig er upphituð innisundlaug og líkamsrækt.
Herbergin eru innréttuð í þægilegum stíl með loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi, minibar, síma og á baðherbergi má finna hárþurrku. Á öllum herbergjum má finna baðslopp og inniskó.
Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.
Góður kostur til að slaka á og njóta í fríinu!