Katane Palace
Hótellýsing

Hótel Katane Palace er fjögurra stjörnu hótel staðsett í hjarta borgarinnar og í göngufjarlægð frá hinum sögufræga miðbæ Catania, 900 metra fjarlægð frá lestarstöðinni og í um það bil 20 mínútna göngufjarlægð frá dómkirkjunni.

Hótelið er hannað í klassískum stíl þar sem stór veggteppi og  bogadregin loft skapa fágaða stemningu. Hér er góð sameiginleg aðstaða, veitingastaður með skemmtilegum borðsal, einnig er hótelbar og fallegt útisvæði þar sem hægt er að sitja þegar vel viðrar.

Herbergin eru með vönduðum húsgögnum og innréttingum, öll vel útbúin með loftkælingu,  fríu Wi-Fi, mínibar, öryggishólfi, síma og hárþurrku á baðherbergi.

Gott morgunverðarhlaðborð í boði,  þvottaþjónusta,  og ráðstefnusalur þar sem hægt er að leigja fundarsali fyrir fyrirtæki eða hópa.