Tilvalið fyrir pör
Hotel Villa Nicolli er rómantískt hótel skammt frá miðbæ Riva del Garda og u.þ.b. 700 m frá ströndinni.
Gestmóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er veitingastaður sem býður upp á alþjóðlega og ítalska matargerð. Einnig hafa gestir hótelsins aðgang að heilsulind með innisundlaug, tyrknesku baði, slökunarsvæði o.fl. Börn undir 18 ára hafa ekki aðgang að heilsulindinni og innisundlauginni. Innifalið í gistingunni er hálft fæði (þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður).
Í gróðursælum hótelgarðinum er stór sundlaug, sólbekkir og sólhlífar.
Öll Romantic herbergin eru með síma, sjónvarpi, minibar, öryggishólfi, loftkælingu, svölum og hárþurrku á baðherbergi. Á öllum herbergjum eru baðsloppar og inniskór.
Hægt að fá lánuð reiðhjól á hótelinu.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.