Hotel Stella Montis
Hótellýsing

Hotel Stella Montis er staðsett á rólegum stað í u.þ.b. 350 m fjarlægð frá miðbæ Campitello di Fassa. Í miðbænum má finna veitingahús, bari, kaffihús og litlar verslanir. 

Móttakan er opin frá 07:00-23:00. Á hótelinu er veitingastaður, rúmgóð og björt setustofa með bar, sjónvarpssalur, lestrarsalur, heilsulind fyrir 18 ára  og eldri með innisundlaug, líkamsræktaraðstaða og upphituðu skíðageymsla. Afnot af gufubaði, sundlaug og líkamsræktarstöð er ókeypis. Nudd og aðrar meðferðir er hægt að bóka gegn greiðslu. Hótelið er nálægt Col Rodella kláfinum sem tengdur er inn á Sella Ronda skíðahringinn. Á hótelinu er innifalið hálft fæði, þ.e.a.s morgunverður og kvöldverður. 

Hótelið er á 5 hæðum með 47 herbergjum og lyftu. Herbergin eru í hefðbundnum Alpastíl með viðarhúsgögnum og með svölum. Í herbergjunum er hjónarúm eða tvö einbreið rúm ásamt svefnsófa. Á öllum herbergjum er sjónvarp, sími, minibar, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi. 

Nálægar skíðalyftur:
- Col de Lin - 350 m
- Col Rodella - 650 m
- Gabia - 2,8 km

Skutlþjónusta að skíðakláfnum í Campitello. 

ATH. rútur komast ekki alveg upp að hótelinu!

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.