Hotel Spinale er mjög gott og vel staðsett hótel í hjarta Madonna di Campiglio við Monte Spinale skíðalyftuna við Schumacher-brekkurnar. Miðbær Madonna er í u.þ.b. 100 m fjarlægð.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu eru 67 herbergi, ásamt veitingastað, bar, setustofu, upphitaðri skíðageymslu, líkamsræktaraðstöðu og heilsulind með innisundlaug. Hægt er að bóka meðferðir í heilsulindinni gegn gjaldi.
Perla herbergin eru hlýleg, nútímalega innréttuð og með svölum. Þessi herbergistýpa er eingöngu fyrir 16 ára og eldri. Á öllum herbergjum er sími, sjónvarp, minibar, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi. Baðsloppar og inniskór eru á öllum herbergjum.
Ath. að aukagjald fyrir barnarúm 30€ á nótt greiðist á hótelinu, en þarf að bókast í gegnum Heimsferðir.
Nálægar skíðalyftur:
- Spinale Express skíðalyftan – 50 m
- 5 Laghi Express skíðalyftan – 350 m
- Miramonti skíðalyftan – 600 m
- Pradalago Express skíðalyftan – 650 m
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.