Hotel Pinzolo Dolomiti
Hótellýsing

Hotel Pinzolo Dolomiti er fjölskyldurekið vel staðsett í miðbæ Pinzolo. 

Á hótelinu er veitingastaður, bar, setustofa og skíðageymsla. Innifalið er hálft fæði, þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður. 

Herbergin eru rúmgóð og hlýlega innréttuð í týrólskum stíl. Þau eru með sjónvarpi, síma, öryggishólfi og hárþurrku á baðherbergi. Gegn aukagjaldi er hægt að óska eftir ísskáp. 

Hótelið er staðsett u.þ.b. 650 m frá Prà Rodont gondola kláfnum og með honum er hægt að komast til Madonna i Campiglio á um 16 mínútum. Skíðarútur stoppa í Pinzolo og sem og áætlunarrútur sem ganga á milli Pinzolo, Madonna di Campiglio og Trento. 

Hótelið bíður gestum upp á skutlu til og frá skíðalyftu í Pinzolo. Lyfturnar tengja Pinzolo við Madonna og Folgarida/Marilleva skíðasvæðin, 150 km af brekkum sem henta jafnt byrjendum svo og þeim sem eru lengra komnir. 

Nálægar skíðalyftur:
- Pinzolo-Prà Rodont gondola kláfurinn - 650 m
- Doss del Sabion 1,9 km

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.