Hótel Panoramic er gott nútímalegt hótel staðsett í Giardini Naxos og er aðeins örfáum skrefum frá Giardini Naxos ströndinni.
Herbergin eru fallega innréttuð. Öll herbergin eru með svölum eða verönd, loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólf (gegn gjaldi) og mini-bar, hárblásari er á baðherbergi.
Á hótelinu er boðið upp á morgunverðarhlaðborð. Veitingastaður og bar er á hótelinu. Sundlaug með fallegu útsýni er á hótelinu og þar eru sólbekkir í kring. Móttakan er opin allan sólarhringinn.
Góður kostur fyrir þá sem vilja dvelja við strönd og í líflegu umhverfi. Vinsæl staðsetning.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.