Hotel Olimpo
Hótellýsing

Sporthotel Olimpo er einfalt hótel í þorpinu Garda. Frá hótelinu eru u.þ.b. 500 m niður að Gardavatninu og inn í miðbæ Garda.  

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er veitingastaður með verönd, fundasalur og tennisvellir. Morgunverður er innifalinn í verðinu. 

Við hótelið er sundlaug, sólbekkir, sólhlífar og fimm tennisvellir. 

Á hótelinu eru 78 einföld herbergi, á öllum herbergjum má finna sjónvarp, öryggishólf, loftkæling í júlí og ágúst, og hárþurrku á baðherbergi.  

Hótelið býður upp á bílastæði fyrir gesti, en það er ekki vaktað. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu í gestamóttökunni, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.