Hotel Occidental Ljubljana
Hótellýsing

Hotel Occidental Ljubljana er nýtt og vel staðsett hótel í stuttu göngufæri við miðbæ Ljubljana. 

Móttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu eru 148 herbergi, bar og veitingastaður, en þar er hægt að panta bæði af hlaðborði eða „a la carte“. Þá er hér einnig líkamsræktaraðstaða. Hótelið býður upp á þvottaþjónustu og herbergisþjónustu (e. room service) gegn auka gjaldi. 

Herbergin eru notalega innréttuð. Á öllum herbergjum er loftkæling, sjónvarp, sími, straujárn, kaffi- og te aðstaða, öryggishólf, mini-bar (gegn gjaldi) og hárþurrka á baðherbergi. Á sumum herbergjum (atrium) snúa gluggarnir inn í aðalrými hótelsins.  

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.