Hotel Miro
Hótellýsing

Hótel Mirò er einfalt fjölskyldurekið hótel í hjarta gamla bæjarins í Garda u.þ.b. 50 m frá Gardavatninu. 

Á hótelinu eru bar, farangursgeymsla og loftkæling. Boðið er upp á morgunverð á hótelinu.  

Engin sundlaug er á hótelinu. 

Herbergi hótelsins eru 15 talsins, þau eru nútímalega innréttuð með loftkælingu, sjónvarpi, öryggishólfi og hárþurrku á baðherbergi. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.