Hotel Lev
Hótellýsing

Hotel Lev er gott hótel, staðsett í miðju viðskiptahverfinu í Ljubljana u.þ.b. 850 m frá gamla bænum í Ljubljana.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Hótelið opnaði 1964 en hefur reglulega verið tekið í gegn, í dag er það nútímalegt og hlýlegt með retro tengingu við uppruna sinn. Á hótelinu eru 231 herbergi, veitingastaður, bar, fundasalir og líkamsræktaraðstaða á Grand Hotel Union sem er í sömu hótelkeðju. 

Herbergin eru þægilega innréttuð, öll búin sjónvarpi, síma, öryggishólfi og á baðherbergjum er hárþurrka. Ekki er ráðlegt að bóka saman 3 fullorðna í herbergi, þar sem aukarúmið hæfir frekar börnum yngri en 12 ára.

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.