Hotel Laguna
Hótellýsing

Hotel Laguna er snyrtilegt hótel staðsett í hæðunum fyrir ofna Garda vatnið.  Vinsælt hótel hjá útivistarfólki, Við mælum með að vera með bíla þegar gist er á hótelinu. Það er um  2 km frá næsta bæ og 12 km að bænum Garda. 

Herbergin eru innréttuð á einfaldan máta. Á öllum herbergjum eru sjónvarp, minibar, öryggishólf, loftkæling, svalir og hárþurrka á baðherbergi. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

 

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Vefsíða hótelsins