Hotel Lago di Garda
Hótellýsing

Hotel Lago di Garda er notalegt hótel staðsett í gamla bænum í Malcesine. Frá hótelinu er u.þ.b. 200 m gangur niður á strönd. 

Á hótelinu er bar og veitingastaður sem bíður uppá ítalska og alþjóðlega rétti bæði í hádeginu og á kvöldin. Á hótelinu er þakverönd með útsýni yfir Gardavatn og Monte Baldo.

Engin sundlaug er við hótelið.

Herbergin eru innréttuð á einfaldan og nútímalegan máta, sum eru með svölum. Á öllum herbergjum er sími, sjónvarp, öryggishólf, minibar, loftkæling og hárþurrka á baðherbergi. 
- Comfort herbergin eru um 18 m² með frönskum svölum, sem ekki er hægt að sitja úti á. 

Í nágrenninu: 
- Castello Scaligero kastali - 230 m
- Kláfurinn upp á Monte Baldo - Funivia Malcesine – Monte Baldo - 500 m

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Vefsíða hótelsins