Hotel Imperial Garda er einfalt hótel staðsett 450 m frá gamla bænum í bænum Garda.
Gestamóttakan er er opin frá 08:00-22:00. Á hótelinu er veitingastaður og bar. Hægt er að velja um gistingu með morgunverði eða hálfu fæði (þ.e.a.s. morgunverði og kvöldverði).
Hótelgarðurinn er gróðursæll með stórri sundlaug, sundbekkjum og sólhlífum.
Herbergin eru nútímaleg en einföld með síma, sjónvarpi, mini-ísskáp, öryggishólfi, loftkælingu, svölum og hárþurrku á baðherbergi.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.