Hotel Ideal er miðsvæðis í Madonna di Campiglio. Á hótelinu er veitingastaður, líkamsræktaraðstaða og heilsulind með finnskri saunu, sundlaug og heitum potti. Læstir skápar skápar með hita fyrir skóna fylgja hverju herbergi.
Herbergin eru með parketi eða teppum á gólfum, sjónvarpi, síma, öryggishólfi og hárþurrku á baðherbergi.
Hótelið bíður gestum upp á skutlu til og frá Spinale og 5 Laghi.
Hægt er að leigja skíðaútbúnað á hótelinu.
Nálægar skíðalyftur:
- Spinale Express-skíðalyftan - 450 m
- 5 Laghi Express-skíðalyftan - 550 m
- Miramonti-skíðalyftan - 800 m
- Pradalago Express-skíðalyftan - 950 m
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.