Hotel Garní La Palú
Hótellýsing

Hotel Garni La Palú er notalegt 3 stjörnu fjölskyldurekið hótel sem er vel staðsett í skíðabænum Pinzolo. Hótelið er staðsett 300 metrum frá skíðabrekkum Pinzolo og 5 mínútna ganga er í miðbæinn.

Gestamóttakan er opin frá kl 8:00 til 22:00. Á hótelinu er veitingastaður og bar, boðið upp á morgunverðarhlaðborð. 

Herbergin eru einföld og snyrtileg með sjónvarpi, skrifborði, síma og öryggishólfi. Á baðherbergi er hárþurrka.

Strætóstoppistöð er 300 metra frá hótelinu sem ferjar fólk á milli Pinzolo og Madonna di Campiglio.

Nálægar skíðalyftur:

  • Pinzolo – Prá Rodont kláfurinn – 400m

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.