Hotel Drago er einfalt hótel staðsett rétt við Gardavatnið í Brenzone.
Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er er veitingastaður og líkamsræktaraðstaða. Hægt er að leigja hjól og kayak í gegnum hótelið.
Í hótelgarðinum er sundlaug ásamt sólbekkjum og sólhlífum. Einnig er það snarlbar.
Comfort herbergin innréttuð á einfaldan máta, öll með svölum, loftkælingu, minibar, öryggisskáp, sjónvarpi og hárþurrku á baðherbergi.
Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.
Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.
Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.
Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.