Hotel Dahu
Hótellýsing

Hotel Dahu er gott og vel staðsett hótel í hjarta Madonna di Campiglio við Pradalago-kálfferjuna. Hótelið er með beinan aðgang að skíðabrekkum, og geta gestir farið inn og út af hótelinu á skíðum.

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu er veitingastaður, bar og heilsulind. Á hótelinu er innifalið hálft fæði, þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður. 

Herbergin eru innréttuð í Alpastíl. Á öllum herbergjum er sími, sjónvarp, öryggishólf, hljóðeinangrun og hárþurrka á baðherbergi. Standard herbergin eru sum með svölum. Superior herbergin eru stærri en standard herbergin og með svölum. Junior svíturnar eru með sér setustofu með svefnsófa. 

Nálægar skíðalyftur:
- Pradalago Express-skíðalyftan – 200 m
- Miramonti-skíðalyftan – 200 m
- Laghi Express-skíðalyftan – 500 m
- Spinale Express-skíðalyftan – 800 m
- Fortini express – 950 m
- Groste‘ 1 Exprss-skíðalyftan – 1 km

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.