Hotel Cristina
Hótellýsing

Hotel Cristina er hlýlegt fjölskyldurekið vel staðsett hótel í Pinzolo. Frá hótelinu er u.þ.b. 200 m ganga í miðbæ Pinzolo. Þetta hótel hentar bæði fyrir einstaklinga, pör og barnafjölskyldur.

Á hótelinu er veitingastaður, skíðageymsla, líkamsræktaraðstaða og heilsulind með sundlaug, nuddpotti, gufubaði og barnasundlaug. Innifalið er hálft fæði, þ.e.a.s. morgunverður og kvöldverður. 

Fjölskylduherbergin eru rúmgóð, samsett af tveimur herbergjum með rennihurð á milli og er sjónvarp í báðum rýmum. Í öðru herberginu er hjónarúm og í hinu er svefnsófi. Í herberginu er minibar, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi. Að hámarki geta fjórir dvalið saman í fjölskylduherbergi. 

Hótelið er staðsett u.þ.b. 300 m frá Prà Rodont gondola kláfnum, en með honum er hægt að komast til Madonna i Campiglio á um 16 mínútum. Í nágrenninu stoppa skíðarútur og áætlunarrútur sem ganga á milli Pinzolo, Madonna di Campiglio og Trento.

Nálægar skíðalyftur:
- Pinzolo-Prà Rodont gondola - 300 m
- Doss del Sabion 1,7 km
- Tulot 1,8 km

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.