Hotel Cristal Palace
Hótellýsing

Cristal Palace er gott hótel í Madonna di Campiglio, staðsett 600 m frá miðbænum og u.þ.b. 300 m frá skíðalyftum. 

Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Á hótelinu eru 62 herbergi, ásamt veitingastað, bar, upphitaðri skíðageymslu og heilsulind með líkamsræktaraðstöðu og innisundlaug. Hægt er að bóka meðferðir í heilsulindinni gegn gjaldi. Hótelið bíður upp á barnagæslu fyrir 4-10 ára börn – en bóka og greiða þarf fyrir hana í gestamóttökunni. 

Superior herbergin eru rúmgóð, smekklega innréttuð og með svölum.  Á öllum herbergjum er sími, sjónvarp, minibar, öryggishólf og hárþurrka á baðherbergi. Baðsloppar og inniskór eru á öllum herbergjum. 

Ath. að aukagjald fyrir barnarúm 30€ á nótt greiðist á hótelinu, en þarf að bókast í gegnum Heimsferðir. 

Nálægar skíðalyftur:
- Pradalago Express-skíðalyftan – 300 m
- Miramonti-skíðalyftan – 350 m
- 5 Laghi Express-skíðalyftan – 550 m
- Fortini Express – 650 m
- Groste‘ Express-skíðalyftan - 800 m
- Spinale Express-skíðalyftan – 800 m 
- Nube d‘Oro – 1,5 km

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.