Hotel Cefalú Sea Palace
Hótellýsing

Hotel Cefalú Sea Palace er gott 4 stjörnu hótel vel staðsett nálægt ströndinni í Cefalú.  Hótelið er með litla einkaströnd sem aðeins er aðgengileg hótelgestum.  Gestamóttakan er opin allan sólarhringinn. Góður garður með fínni sólbaðsaðstöðu.  Á hótelinu er heilsurækt með nuddpotti, sauma og tyrknesku baði.

Herbergin eru rúmgóð og fallega innréttuð í hlýlegum stíl. Svalir á öllum herbergjum og lítill sófi í þeim flestum.  Skemmtilegur veitingastaður.

Fallegt og virðulegt hótel vel staðsett í Cefalú

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Gjaldið er yfirleitt í kringum 3-4 evrur  á mann á dag. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.