Hotel Campagnola
Hótellýsing

Hotel Campagnola er fjölskyldurekið hótel staðsett í u.þ.b. 3 km frá fjarlægð frá miðbæ Malcesine. 

Á hótelinu er morgunverðarsalur og bar. Yfirbyggð hjólageymsla og ókeypis bílastæði eru á hótelinu. Frá hótelinu eru u.þ.b. 50 m gangur niður á almenningsströnd, einnig eru u.þ.b. 50 m niður á 32 km hjólastíg sem liggur meðfram vatninu.

Í hótelgarðinum er sundlaug, í kringum laugina eru sólbekkir og sólhlífar. 

Hótelið býður upp á gistingu í 22 herbergjum. Á öllum herbergjum eru svalir annars vegar með útsýni út í garðinn eða út á vatnið. Herbergin innréttuð í björtum litum og útbúin öllum helstu nauðsynjum. Á öllum herbergjum eru sími, sjónvarp, öryggishólf, loftkæling og hárþurrka á baðherbergi. 

Hótelið býður upp á Wi-Fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Vefsíða hótelsins