Hotel Brione Green
Hótellýsing

Vinalegt fjölskyldurekið hótel staðsett í Riva del Garda

Hotel Brione Green er staðsett í rólegu umhverfi rétt fyrir utan Riva del Garda en um 20 mín gangur er inní miðbæinn. Þar má finna verslanir, veitingastaði og bari. Stuttur gangur er niður á strönd og hægt er að ganga eða hjóla meðfram ströndinni inní miðbæinn.

Á hótelinu er sundlaug og sólbaðsaðstaða með sólbekkjum í fallegum sundlaugargarði sem er vel haldið við. Veitingastaður og bar eru á hótelinu og er lagt mikinn metnað í matargerðina.

Herbergin eru innréttuð í þægilegum stíl og búin öllum helstu þægindum eins og loftkælingu, öryggishólfi, sjónvarpi, síma og inná baðherbergi má finna hárþurrku. Ath. ekki hafa öll herbergin á hótelinu verið endurnýjuð. Mansarde herbergin er án loftkælingar og eru á efstu hæð hótelsins.

Hótelið býður upp á wi-fi tengingu að kostnaðarlausu, en vert er að taka fram að internetsamband á hótelum getur verið hægt á álagstíma.  

Athugið að myndir af gististöðum á heimasíðu Heimsferða eru opinberar myndir gististaðanna til að gefa hugmynd um hvernig umhorfs er á gististaðnum og svæðinu. Heimsferðir geta ekki tryggt að ekkert hafi breyst frá því að þær voru teknar.

Athugið að Heimsferðir ráða ekki staðsetningu sinna farþega.

Á gististöðum hér þarf að greiða gistináttaskatt en skattinn greiða ferðamenn á viðkomandi gististað fyrir hverja gistinótt á mann en gjaldið er misjafnt og miðast við opinbera stjörnugjöf gististaðarins. Ferðaskrifstofur geta ekki innheimt skattinn.

Kósý hótel sem hefur metnað að taka vel á móti farþegum.